flugfréttir

Takmarkanir á vinnutíma flugmanna skerðir flugáætlun Finnair

30. nóvember 2016

|

Frétt skrifuð kl. 12:00

Airbus A350 þota Finnair

Finnair undirbýr sig fyrir að fella niður einhverjar flugferðir í kjölfar takmarkanna á vinnutíma meðal flugmanna sem boðað hefur verið til af félagi finnskra atvinnuflugmanna.

Kjarasamningur við flugmenn rann út þann 15. nóvember og hafa kjaraviðræður farið fram eftir það en síðan þá hefur Finnair ekki náð að fljúga einhverjar flugferðir vegna takmarkanna sem felur í sér yfirvinnubann og bann við breytingum á frítíma þar sem flugmenn á bakvakt ætla ekki að hlaupa í skarðið vegna veikinda.

Jaakko Schildt, fjármálastjóri Finnair, segir að samningaviðræður standi nú yfir og sé hann vongóður um að hægt verði að komast að samkomulagi á næstunni við félag finnskra atvinnuflugmanna svo flugáætlun félagsins geti haldist óskert.

Eins og staðan er núna þarf Finnair að fella niður flug ef flugmaður verður skyndilega veikur fyrir brottför þar sem ekki eru nægilega margir á bakvakt og þar að auki hefur Finnair færri flugmenn á vakt þar sem fjöldi þeirra er að gangast undir þjálfun á Airbus A350 vélarnar.

Finnair tilkynnti þann 27. október sl. að félagið þyrfti að fella niður einhverjar flugferðir til Asíu á meðan verið er að þjálfa flugmenn á nýju Airbus A350-900 vélarnar og hefur t.a.m. verið ákveðið að fella niður flug frá Helsinki til Chongqing í Kína frá 11. janúar til 2. maí á næsta ári og einnig hafa verið feldar niður einhverjar flugferðir frá Helsinki til Nagoya í Japan.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga