flugfréttir
Lík fannst í hjólarými á Airbus A330 þotu í Suður-Afríku
Airbus A330-200 þota Arik Air á O.R. Tambo flugvellinum í Jóhannesarborg
Lík af laumufarþega fannst í hjólarými á Airbus A330-200 þotu frá nígeríska flugfélaginu Arik Air á flugvellinum í Jóhannesarborg í Suður-Afríku.
Vélin lenti í Jóhannesarborg í gær eftir flug frá Lagos en þegar vélin átti að gangast undir stutta viðhaldsskoðun komu flugvirkjar frá South African Airways auga á lík er þeir kíktu upp undir rýmið þar sem hjólin fara upp eftir flugtak.
Rannsókn er hafin á því hvernig laumufarþeginn fór að því að komast að vélinni en grunur leikur á því
að viðkomandi hafi farið inn á flugvallarsvæðið í Lagos í skjóli nætur og komið sér fyrir í hjólarýminu
í von um að komast úr landi.
Stutt er síðan að laumufarþegi fannst í hjólarými á farþegaþotu frá nígeríska flugfélaginu Med-View en flugstjóri
kom auga á hann er hann fór í eftirlitsferð í kringum vélina fyrir brottför og var hann handtekinn.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.