flugfréttir
Nýtt kerfi á Heathrow hefur stytt bið eftir lendingu um 2 mínútur
- Tímaaðskilnaðarkerfið (TBS) var tekið í notkun vorið 2015
Í flugturninum á Heathrow-flugvellinum í Lundúnum
Töluverðum árangri hefur verið náð í styttingu á biðtíma eftir lendingu á Heathrow-flugvellinum í London á síðustu 18 mánuðum.
Árið 2014 kynnti breska flugmálastjórnin (NATS) til sögunnar nýtt tímaaðskilnaðarkerfi fyrir lendingar sem nefnist „time based
seperation“ (TBS) sem tók við af aðskilnaðarkerfi sem var bundið við fjarlægð milli flugvéla í lendingu.
Kerfið aðskilur flugvélar í aðflugi og flugtaki með tímaútreikningi í stað þess að notast við fjarlægðir en þá 18 mánuði sem kerfið hefur verið í noktun
á Heathrow hefur verið hægt að draga úr seiknunum á flugvellinum og hafa lendingar gengið greiðlega fyrir sig.
Flugvélar í aðflugi að Heathrow
Í mörgum tilvikum þurfa flugvélar sem fljúga til London Heathrow að hringsóla í nágrenni flugvallarins
á meðan þær bíða eftir að lendingarleyfi og fór meiri tími í að gefa vélum leyf til að lenda þar sem ákveðin fjarlægð
þarf að vera á milli véla.
Með TBS kerfinu hefur nú verið hægt að áætla lendingartíma með því að reikna út hvirfilslóð fyrir hverja flugvél fyrir sig og tekur kerfið mið af vindátt og veðri með
myndrænum upplýsingum sem birtast á skjá í flugturninum.
Árið 2014 var meðalbiðtími eftir lendingu á Heathrow um 8.5 mínúta en biðtíminn datt niður í 7.5 mínútur
fyrr á þessu ári og í ágúst í haust var meðalbiðtími komin niður í 6.5 mínútur.
Munurinn á kerfinum útskýrður
Þótt að tvær mínútur hljómi ekki sem mikil breyting þá safnast það fljótt upp m.a.v. þann fjölda véla
sem lenda á Heathrow-flugvelli sem sparar bæði tíma og dregur úr útblæstri kolefna út í andrúmsloftið.
NATS áætlar að á þessum tveimur árum hafi TBS kerfið náð að minnka útblástur frá flugvélum um 35 þúsund
tonn af kolefnum með styttingu biðtíma á 2 mínútur á hverja flugvél.
Heathrow-flugvöllurinn var fyrsti flugvöllurinn í heimi til að taka TBS (time-based separations) kerfið í notkun en kostir þess munu einnig hafa áhrif á aðra flugvelli í Evrópu og víðar þar sem
brottfaraflug mun verða stundvísara þegar vélarnar fara að lenda á réttum tíma.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.