flugfréttir

Myndband: Samsetning á Boeing 737 flughermi

30. nóvember 2016

|

Frétt skrifuð kl. 20:42

Myndbandið var tekið árið 2014 þegar Alaska Airlines fékk afhentan nýjan Boeing 737 flughermi frá CAE

Hér má sjá skemmtilegt myndband sem sýnir hvernig flughermir er settur upp á þremur mínútum en myndbandið er spilað á miklum hraða og var tekið upp þegar Alaska Airlines fékk nýjan flughermi fyrir Boeing 737-800.

Flughermirinn er frá kanadíska flughermaframleiðandanum CAE og er af gerðinni CAE 7000 en Alaska Airlines hefur einnig í þjálfunarbúðum sínum flugherma fyrir Boeing 737-700 og 737-400.

Nútíma flughermar taka sitt pláss og dugar venjulegur bílskúr ekki sem aðstaða fyrir þá þar sem þónokkur lofthæð þarf að vera í viðkomandi húsnæði auk rýmis svo flughermirinn geti hreyfst til og frá á þar til gerðum tjökkum.

Kassinn utan um herminn er engin smá smíð

CAE 7000 flughermirinn, sem er „Full-Flight Simulator“ hermir, er það sem kallast Level D flughermir sem þýðir að hann er eins fullútbúinn hreyfanlegur flughermir eins og völ er á með raunverulegstu eftirlíkingu af stjórnklefa sem til er þar sem enginn munur er á flughermi og stjórnklefa á þeirri flugvél sem hann líkir eftir.

Level D flughermir skal hreyfast með öllum sex snúningsmöguleikunum með a.m.k. 150 gráðu ásýnd fyrir hvern flugmann með myndvörpun sem býður upp á fjarlægðardýptarfókus, raunveruleg umhverfishljóð ásamt fleiri hreyfingaratriðum.

Nýjasta línan frá CAE í flughermum er CAE 7000XR en einn slíkur kostar tæpa 2,1 milljarð króna sem samsvarar 20% af verði einnar Boeing 737-800 þotu sem kostar tæpa 10 milljarða.

Einn CAE 7000 flughermir kostar rúmar 2 milljarða króna

Ekki kemur fram hversu langan tíma það tók fyrir Alaska Airlines að setja upp flugherminn en það tók þjálfunarbúðir Lufthansa 17 daga að setja sömu tegund af flughermi upp og voru átta starfsmenn sem komu þar að verki.

Alaska Airlines hefur einungis Boeing 737 vélar í flota sínum sem telur alls 154 þotur en félagið hefur sex tegundur af Boeing 737 vélum - Boeing 737-400, Boeing 737-400C, sem er blanda af farþegaþotu og fraktþotu, Boeing 737-700, 737-800, 737-900 og Boeing 737-900ER og eina Boeing 737-400F.

Myndband:







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga