flugfréttir
Fyrsta Boeing 787-10 komin í lokasamsetningu
- Boeing 787-10 verður eingöngu framleidd í Suður-Karólínu
Miðhlutinn og stélhlutinn komnir í hús í verksmiðjum Boeing í North Charleston í Suður-Karólínu
Lengsta Dreamliner-þotan, Boeing 787-10, er komin í lokasamsetningarsal Boeing í verksmiðjunum í North Charleston í Suður-Karólínu.
Boeing 787-10 verður 68.3 metrar á lengd eða 11.6 metrum lengri en Boeing 787-8 og 5.5 metrum lengri en Boeing 787-9 en þess
má geta að vélin er 5.5 metrum styttri en samkeppnisvélin, Airbus A350-1000.
Boeing byrjaði að framleiða fyrstu Dreamliner-þotuna sem fór í samsetningu í maí árið 2007 sem var af gerðinni Boeing 787-8
en samsetning á næstu tegund, Boeing 787-9, hófst sex árum síðar eða í maí árið 2013 og nú fer síðasta og stærsta
tegundin í samsetningu þremur árum á eftir, Boeing 787-10.
Singapore Airlines fær fyrstu Boeing 787-10 þotuna árið 2018
Af þeim 1,208 Dreamliner-þotum sem pantaðar hafa verið þá hafa fæstar pantanir komið í Boeing 787-10 en alls hafa níu flugfélög
pantað þessa tegund en Etihad Airways og Singapore Airlines hafa pantað flestar vélarnar eða 30 eintök hvor en Singapore Airlines
verður fyrsta flugfélagið til að fá Boeing 787-10.
Hér að neðan má sjá myndir þegar miðhluti og stélhluti vélarinnar komu í hús í verksmiðjuna í Suður-Karólínu í gær en Boeing 787-10
þoturnar verða eingöngu framleiddar í Suðurríkjunum en Boeing 787-8 og 787-9 eru framleiddar á báðum stöðum í Suður-Karólínu
og í Everett.
Tugi starfsmanna Boeing skrifuðu nöfn sín á seglið utan á stélhlutanum
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.