flugfréttir
Flugslysið í Kólumbíu: Hljóðupptaka af samtali ATC og flugmannanna
- Hljóðupptaka frá ATC bendir til eldsneytisskorts
Hljóðupptaka af samtali milli flugmanna flugs LMI2933 og flugumferðarstjórans í Medellín
Upptaka af samskiptum milli flugmanna Avro RJ-85 þotu LAMIA Bolivia og flugumferðarstjóra í Kólumbíu var í gær lekið í fjölmiðla en vélin fórst í aðflugi að flugvellinum í Medellín í Kólumbíu sl. mánudag með brasilíska fótboltaliðið Chapecoense um borð.
Samkvæmt upptöku sem birt hefur verið má heyra hvar flugstjórinn biður flugumferðarstjóra í Medillín um forgang til þess að lenda strax þar
sem þeir eiga í vandræðum með eldsneytið um borð.
Flugumferðarstjórinn segist skilja beiðni þeirra en tilkynnir þeim að þeir verði að bíða í 7 mínútur til viðbótar til að fá leyfi til lendingar þar sem önnur
vél var í lokaðfluginu inn á brautina.
Hér á eftir verður greint frá samtalinu milli flugumferðarstjóra og flugvélarinnar síðustu 6 mínúturnar en hægt er hlusta á upptökuna hér
að neðan þess í stað með enskum texta
Flugumferðarstjórinn leiðbeinir öðrum vélum sem eru í aðfluginu og segir LAMIA vélinni að þeir
geti ekki alveg lent strax og þar að auki sé verið að athuga ástandið á brautinni.
Því næst spyr flugumferðarstjórinn hversu mikið eldsneyti þeir hafa eftir og svarar flugstjórinn að eldsneyti sé það lítið að um neyðarástand sé að ræða og biðja
þeir um heimild til að lækka strax flugið inn á brautina.
Flugumferðstjórinn biður þotu frá LAN Columbia um að hætta við aðflugið og leyfir LAMIA vélinni að hefja aðflug og lækka flugið en þegar þar er komið
við sögu má heyra annan flugmanninn segja „gear down“ (niður með hjólin).
Áfram leyfir flugumferðarstjórinn vélinni að halda aðfluginu áfram á meðan hún svarar öðrum vélum sem spyrja hversu lengi þeir þurfa að fara í biðflug
en þegar þarna er komið við sögu er LAMIA vélin í 17.000 feta hæð yfir sjávarmáli eða í 10.000 fetum yfir sömu hæð og flugvöllurinn í Medellín.
Tveimur mínútum síðar segir flugstjórinn að ástandið sé orðið enn verra. Orðrétt segir hann: „Total failure - total electric and fuel failure“
- Flugumferðarstjórinn biður þá slökkviliðið um að fara í viðbragðsstöðu og tilkynnir flugmanninum að flubrautin er tilbúin fyrir hann
til þess að lenda en flugstjórinn svarar í örvæntingu: „Vectors, vectors to the runway“
Flugumferðarstjórinn svarar að hún hafi misst samband og segir að hún sjái hann ekki lengur og biður um stefnu og flugstjórinn svarar: „We´re heading 360“.
Flugumferðarstjórinn segist ekki sjá lengur í hvaða flughæð hann er í en flugstjórinn svarar að þeir séu í 9.000 fetum og eru því í 2.000 feta hæð
m.a.v flugbrautina.
Aftur biður flugstjórinn um stefnu („vectors“) inn á brautina. Flugumferðarstjórinn segir að hann sé í 8.2 mílna fjarlægð frá brautinni sem samsvarar 13 kílómetrum.
„What´s your altitude now?“, spyr flugumferðarstjórinn eða hver er þín flughæð núna. Eftir smá þögn spyr flugumferðarstjórinn: „Say you position?“
en aldrei kom neitt svar til baka frá vélinni.
Hljóðupptaka frá ATC:
Flugfreyja, sem var meðal þeirra fimm sem komust lífs af úr slysinu, staðfestir eldsneytisskortinn auk tveggja flugmanna sem flugu Airbus A320 þotu
frá kólumbíska flugfélaginu Avianca sem var á flugi í nágrenninu sem heyrðu samskipti milli þotunnar sem fórst og flugumferðarstjórans.
Airbus A320 vélin frá Avianca var í aðflugi að Medellín auk annarrar Airbus A320 þotu frá VivaColombia en þotan sem fórst átti að vera
númer 3 í röðinni í lendingu.
Yfirvöld segja að ekki sé búið að útiloka neina orsök slyssins sem er til rannsóknar en segja að mögulega hafi vélin verið orðin
uppskroppa með eldsneyti sem hafi slegið út rafkerfi vélarinnar og þá renni það stoðum undir þá kenningu þar sem engin sprenging
kom upp í vélinni er hún flaug á fjallshlíðina í 24 kílómetra fjarlægð suður af Medellín.
Mögulegur eldsneytisskortur er meðal þess sem rannsakendur eru að skoða varðandi slysið en yfirmaður flugmála í Kólumbíu
segir að flugvélar verði að hafa viðbótareldsneyti upp á 30 til 45 mínútur til öryggis ef þær þurfa að lenda á öðrum flugvelli.
John Cox, fyrrverandi atvinnuflugmaður, sem hefur látið af störfum, og eigandi fyrirtækisins Safety Operating Systems í Flórída, segir
að ef svo reynist vera að eldsneyti vélarinnar hafi verið á þrotum þá sýnir það að vélin hafi flogið með lágmarkseldsneyti aðeins
fyrir áætlaða flugleið sem er gríðarlegt gáleysi af flugrekstaraðilanum.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.