flugfréttir

FAA biður flugfélög um að endurræsa rafkerfi á Boeing 787 „öðru hvoru“

- Mögulegur galli gæti slegið út tölvukerfi sem tengist stjórnflötum

2. desember 2016

|

Frétt skrifuð kl. 08:38

Starfsmenn United Airlines að störfum í stjórnklefa á Dreamliner-þotu félagsins á flugvellinum í Chicago

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) hafa gefið frá sér yfirlýsingu þar sem þau flugfélög, sem hafa Dreamliner-þoturnar í flota sínum, er ráðlagt að endurræsa rafkerfi vélarinnar stöku sinnum.

Í tilmælum frá FAA kemur fram að nauðsynlegt sé að endurræsa rafkerfið til að koma í veg fyrir lítinn galla sem getur slegið út öllum þremur tölvukerfum vélarinnar, sem stjórna stjórnflötum, en slíkt myndi gera það að verkum að stjórnfletir vélarinnar myndu hætt að virka um stundarsakir á meðan vélin er á flugi.

Flugfélög, sem hafa Boeing 787, eru beðin um að gera þetta á a.m.k. 22 daga fresti þar til Boeing hefur fundið varanlega lausn á þessu vandamáli en enn sem komið er hefur þessi galli ekki komið upp hjá neinu flugfélagi.

Aðili, sem er kunnugur málinu og vill ekki koma fram undir nafni, segir að mjög sjalgæft sé að flugfélög hafi afl á rafkerfinu á flugvélum sínum svo lengi í gangi og þá er það í mesta lagi um eina viku að ræða.

Boeing segir að framleiðandinn hafi þegar greint flugfélögum frá málinu og sé von á því að varanleg lausn verði komin næsta vor.

Tilmæli FAA ná til 99 Dreamliner-véla sem eru skráðar í Bandaríkjunum en alls hefur Boeing afhent 500 Dreamliner-vélar um allan heim.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga