flugfréttir

Czech Airlines mun fljúga til Íslands

- Munu hefja flug frá Prag til Keflavíkur sumarið 2017

2. desember 2016

|

Frétt skrifuð kl. 15:34

Czech Airlines mun byrja að fljúga til Íslands frá Prag þann 1. júní 2017

Enn bætast við ný flugfélög í hóp þeirra sem bjóða komu sína til Íslands en tékkneska flugfélagið Czech Airlines ætlar að hefja flug til Íslands frá og með júní sumarið 2017.

Czech Airlines mun fljúga til Keflavíkurflugvallar frá Prag með Airbus A319 þotum og hefst flugið þann 1. júní 2017 og ætlar félagið að fljúga hingað tvisvar í viku, á þriðjudögum og fimmtudögum.

Airbus A319 þota Czech Airlines

„Það er mjög ánægjulegt að bæta Prag inn á vaxandi lista áfangastaða í beinu áætlunarflugi frá Keflavíkurflugvelli og Czech Airlines á listann yfir flugfélög sem fljúga til og frá flugvellinum. Prag er mjög falleg borg sem fjöldi Íslendinga hefur fallið fyrir í gegnum tíðina og við vonum auðvitað að sem flestir nýti sér tækifærið og heimsæki borgina næsta sumar“, segir Hlynur Sigurðsson, framkvæmdarstjóri viðskiptasviðs Isavia.

Czech Airlines er þjóðarflugfélag Tékklands en félagið hefur sautján flugvélar í flota sínum, níu Airbus A319 þotur, eina Airbus A330-300 breiðþotu og sjö ATR skrúfuvélar.

Czech Airlines verður 28. flugfélagið til að fljúga um Keflavíkurflugvöll í farþegaflugi en Finnair hefur einnig boðað komu sína í apríl og verður flugfélagið finnska það tuttugasta og sjöunda sem bætist við í flóruna.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga