flugfréttir

Norwegian fær langþráð leyfi fyrir flugi milli Bandaríkjanna og Írlands

5. desember 2016

|

Frétt skrifuð kl. 12:06

Dreamliner-þota Norwegian

Norwegian Air Shuttle ætlar sér að leggja inn pöntun í enn fleiri farþegaþotur frá Boeing og Airbus í kjölfar þess að félagið hefur loksins fengið leyfi frá bandarískum stjórnvöldum fyrir farþegaflugi milli Írlands og Bandaríkjanna.

„Það liggur enginn vafi á því að við munum þurfa á fleiri vélum að halda eftir þetta“, segir Bjørn Kjos, framkvæmdarstjóri Norwegian, sem á von á því að fleiri vélar verði pantaðar bæði frá Boeing og Airbus.

Það er dótturfélagið, Norwegian Air International, sem fékk loksins langþráð leyfi fyrir flugi vestur um haf og er stefnt að því að fljúga m.a. frá Cork til Boston og New York en leyfið hefur valdið áhyggjum meðal bandarískra flugfélaga.

Norwegian segir í yfirlýsingu sinni að félagið þakki þeim fjölmörgu aðilum sem hafa lagt hönd á plóg við að láta flugleyfi til Bandaríkjanna frá Írlandi verða að veruleika og sé næsta skrefið að fá varanlegt leyfi fyrir flugi milli Bretlands og Bandaríkjanna.

Norwegian ætlar sér stóra hluti á næstu árum í flugi milli Bretlandseyja og Bandaríkjanna og brjóta blað í sögu lágfargjaldaflugs yfir Atlantshafið.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga