flugfréttir

1.000 dagar frá því malasíska farþegaþotan hvarf

- Aðstandendur ferðast til Madagascar til að hvetja fólk til að leita að braki

6. desember 2016

|

Frétt skrifuð kl. 06:21

Grace Subathirai Nathan ásamt öðrum aðstandanda farþega sem var um borð í malasísku farþegaþotunni

Hópur fjölskyldumeðlima og aðstandendur þeirra sem voru um borð í malasísku farþegaþotunni, sem hvarf sportlaust í mars árið 2014, eru nú komnir til Madagascar þar sem þeir ætla að gera tilraun til þess að leit verði gerð meðfram strönd eyjunnar að braki úr flugi MH370.

Hópurinn, sem hefur ferðast til Madagascar frá Malasíu, sagði fyrir upphaf ferðarinnar að síðasta úrræðið væri að taka leitina í sína eigin hendur en til stendur að hvetja íbúa eyjunnar til að taka þátt í leitinni með sér með því að leita að braki á austurströnd Madagascar.

Móðir Grace Subathirai Nathan var um borð í flugi MH370 en hún hefur meðal annarra ferðast til Madagascar og fjármagnað förina sjálf auk sex annarra ættingja, þriggja frá Malasíu auk þess sem með henni eru tveir Kínverjar og einn Frakki.

Í dag eru 1.005 dagar liðnir frá því flug MH370 hvarf

Ekkert brak hefur fundist á þeim stað þar sem leitin hefur staðið yfir í Suður-Indlandshafi sl. 2 ár en a.m.k. sex sinnum hefur fundist brak við austurströnd Afríku og við Madagascar.

Hópurinn hefur dreift bæklingum til íbúa í þorpum nálægt ströndinni með fræðsluefni um hvernig hægt sé að bera kennsl á flugvélabrak og þá hefur verið rætt við hjálparstofnanir og kirkjusöfnuði.

„Við höfum talað við fólk á borð við fiskimenn, fólk sem býr við ströndina og vonumst til að þau verði metvituð um málið og við höfum kennt þeim hvernig hægt er að þekkja brak úr flugvél, hvernig á að halda því til haga ef þau finna það og hvað eigi að gera ef þau rekast á það“, segir Nathan.

Dreifa bæklingum til fólks með upplýsingum um hvernig á að bera kennsla á brak úr flugvél

Hópurinn verður á Madagascar til 11. desember en í yfirlýsingu frá hópnum Voice 370 kemur fram að ekki sé neitt annað úrræði sem standi þeim til boða nema að taka málin í sínar eigin hendur í von um að finna svör við því hvað varð um flug MH370.

Síðastliðinn föstudag (2. desember) voru 1.000 dagar liðnir frá því að malasíska farþegaþotan hvarf sporlaust á leið sinni frá Kuala Lumpur til Peking.

Grace Subathirai Nathan á blaðamannafundi í gær í borginni Antananarivo



Sex ættingjar ferðuðust til Madagascar í von uam að geta sett af stað leit meðal íbúa við austurströnd eyjunnar







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga