flugfréttir

Etihad Airways mun stofna nýtt flugfélag í Evrópu

- Kaupa helmingshlut Air Berlin í Niki til að stofna Blue Sky

6. desember 2016

|

Frétt skrifuð kl. 07:53

Flugvélar Air Berlin og Niki á flugvellinum í Dusseldorf

Þýska flugfélagið Air Berlin hefur tilkynnt að félagið muni selja um helmingshlut sinn í austurríska flugfélaginu Niki til Etihad Airways fyrir um 35 milljarða króna.

Um er að ræða 49.8% hlut í félaginu en salan er hluti af áætlunum Etihad Airways um að stofna nýtt evrópskt flugfélag sem er í deiglunni en salan bíður nú þess að fá samþykki frá stjórnvöldum.

Komið hefur fram að nýja flugfélagið muni fá nafnið Blue Sky en flugfélagið TUI mun koma til með að eiga 24.8% í félaginu á móti 25 prósenta hlut Etihad Airways en helmingur félagsins verður í eigi Niki.

Etihad Airways keypti 29% hlut í Air Berlin árið 2012

TUI mun leggja til fimm farþegaþotur frá flugfélaginu TUIfly af gerðinni Boeing 737-700 í hið nýja flugfélag auk níu þotna af gerðinni Boeing 737-800 en vélarnar hafa nú þegar verið í leigu hjá Air Berlin.

Air Berlin mun færa allar Airbus A321 vélarnar sínar, sem eru 21 talsins, yfir til Niki á meðan flugfélagið austurríska mun flytja fimm Airbus A319 vélar og þrettán Airbus A320 yfir til Air Berlin.

Blue Sky mun koma til með að hafa höfuðstöðvar sínar í Vín í Austurríki og er áætlað að félagið muni hefja starfsemi sína í apríl eftir áramót.

Til stendur að félagið muni fljúga frá Berlín, Dusseldorf, Köln, Frankfurt, Stuttgart, Munchen, Nuremberg, Karlsruhe, Hamborg, Basel og Vín til áfangastaða við Miðjarðarhafið, á Kanaríeyjum auk þess sem félagið mun fljúga til Grikklands og til Spánar.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga