flugfréttir
United ætlar að rukka fyrir handfarangursgeymslur
- Öldungardeildarþingmaður segir að með þessu sé síðasta vígið fallið
United Airlines mun rukka fyrir afnot af handfarangursgeymslum sé flugið bókað á Basic Economy
United Airlines ætlar að byrja að rukka farþega fyrir afnot af handfarangursgeymslum með því að koma á fót farrýminu Basic Economy en með því þurfa farþegar annaðhvort að greiða fyrir innritaðan farangur eða handfarangur.
Ef farþegar ætla að forðast að greiða fyrir farangurinn þá er eina leiðin að taka svo lítinn handfarangur með að hann passi undir
sætið fyrir framan þá eða taka engar töskur með og fara allslausir í ferðalagið.
Öldungardeildarþingmaðurinn Chuck Schumer hefur hvatt United Airlines til að hætta við áform sín um að rukka farþegar fyrir
handfarangursgeymslurnar og segir hann að með því sé síðasta vígið fallið.
Flugvélar United Airlines
„Geymslur fyrir handfarangurinn fyrir ofan sætin er síðasta vígið sem hefur verið látið til friðs þegar kemur að þægindum
um borð og er það áhyggjuefni ef félagið - og mögulega önnur flugfélög líka - ætli að taka þetta frá farþegum“, segir Schumer.
„Flugfélögin rukka nú þegar fyrir innritaðan farangur, hnetur, heyrnartól, púða og nú á að taka handfarangursgeymslurnar af þeim“, segir
ennfremur í tilkynningu frá Schumer.
Farþegar munu samt sem áður ennþá hafa þann möguleika á að bóka Premium Economy hjá United Airlines þar sem geymslur
fyrir handfarangur er innifalinn en þrátt fyrir það þá segir Schumer að farþegar séu orðnir þreyttir á því að þurfa greiða fyrir hverja
tösku sem þeir taka með sér um borð.
United Airlines ætlar með þessu að auka hagnað sinn um einn milljarða dollara fyrir árið 2020 en önnur flugfélög ætla að sjá hvernig
þetta mun ganga hjá United áður en þá taka ákvörðun um að rukka einnig fyrir handfarangursgeymslur.
Önnur flugfélög hafa einnig Basic Economy farrými en öll þau félög leyfa farþegum að nota handfarangursgeymslurnar þeim að kostnaðarlausu.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.