flugfréttir
Flugslys: Flugvél frá PIA fórst í Pakistan með tæp 50 manns um borð
Vélin var af gerðinni ATR 42-500 og var á leið frá Chitral til Islamabad þegar hún hvarf af radar
Tilkynnt hefur verið um flugslys í Pakistan nú fyrir skömmu en um er að ræða ATR 42-500 skrúfuvél frá flugfélaginu Pakistan International Airlines sem sögð er hafa brotlent í norðurhluta landsins í morgun.
Vélin var á leið frá bænum Chitral til höfuðborgarinnar Islamabad með 47 manns innanborðs en á leiðinni lýstu flugmennirnir yfir neyðarástandi
um borð vegna bilunar með vinstri mótorinn.
Skömmu síðar, eða klukkan 11:30 að íslenskum tíma, rofnaði samband við vélina sem hvarf af ratsjá en að sögn lögreglu hefur komið í ljós
að vélin fórst nálægt bænum Havelian þegar vélin áttu um 50 kílómetra eftir til Islamabad og tilkynntu íbúar um mikinn hvell sem heyrðist er vélin skall í jörðina.
Um borð í vélinni voru 42 farþegar og fimm manna áhöfn en samkvæmt heimildum þá kemur fram að búið sé að staðsetja flak vélarinnar
og er björgunarlið á leiðinni á vettfang.
Erlendir fjölmiðlar hafa birt myndir sem sagðar eru vera af logandi braki í fjallshlíð þar sem vélin fórst en að sögn yfirvalda eru taldar mjög litlar líkur á því að einhver finnist á lífi.
Vélin sem fórst bar skráninguna AP-BHO og var hún 9 ára gömul en vélin var afhent ný til Pakistan International Airlines (PIA) árið 2007.
Á Twitter má sjá færslu frá einum notanda þar sem kona ein segir að bróðir sinn, sem er flugstjóri hjá PIA, hafi flogið vélinni sem fórst fyrir nokkrum
dögum síðar og hafi hann talað um að vélin hafi verið að hans mati í slæmu ástandi.
Upplýsingaskilti á flugvellinum í Islamabad
Fréttin verður uppfærð
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.