flugfréttir
Flugslys í Sviss: Piper PA-34 Senaca fórst á flugvellinum í Basel
- Flaug mjög nálægt yfir Airbus A320 þotu BA sem var að bíða eftir flugtaki
Flugvélin sem fórst var af gerðinni Piper PA-34 Senaca II
Tveir létu lífið er lítil flugvél af gerðinni Piper PA-34 Seneca II fórst á flugvellinum í Basel í Sviss í gær.
Mikil þoka var er slysið átti sér stað um klukkan 17:40 í gær að staðartíma og var flugvellinum í Basel lokað í kjölfarið og seinkaði áætlunarflugi verulega um völlinn.
Vélin var í aðflugi að vellinum og kemur fram að hún hafi farið mjög nálægt farþegaþotu British Airways af gerðinni Airbus A320 sem beið við brautarendann eftir að fara í flugtak til London Heathrow
en flugstjórinn sá vélina koma inn til lendingar.
Flugvélin hætti skyndilega við lendingu og ætlaði í fráflug („go around“) en náði ekki að hækka flugið og brotlenti hún vestan við brautina og
varð alelda.
Neyðarteymi fór strax á staðinn og var flugvellinum lokað fyrir öllu flugi í kjölfarið og hélt þotan frá British Airways aftur að flugstöðinni og var fluginu til London Heathrow frestað til næsta dags.
Einhverjum farþegum, sem sátu við gluggann um borð í British Airways vélinni, var mjög brugðið þar sem þeir urðu vitni að slysinu og sáu er Senaca-vélin skall í jörðina en sem sáu atvikið náðu ekki að átta sig á því hvað þarna var á ferðinni þar sem skyggni var slæmt.
Basel-Mulhouse flugvöllurinn var enn lokaður kl. 23:00 í gærkvöldi.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.