flugfréttir

Yfirflugfreyja í óhreinu dressi olli 2 tíma seinkun á flugi með Boeing 777

- Mætti í óhreinum og krumpuðum búning

13. desember 2016

|

Frétt skrifuð kl. 20:54

Flugfreyja hjá Air India

Seinkun varð á flugi hjá Air India fyrr í þessum mánuði en ástæða seinkunarinnar verður að teljast af undarlegu tagi.

Verið var að undirbúa flug AI 191 frá Bombay til Newark í Bandaríkjunum laugardaginn 4. desember sl. með Boeing 777-300ER þotu félagsins þegar flugliðarnir um borð gáfu því gaum að ein flugfreyjan var það sjúskuð í klæðaburði að ekki væri hægt að láta farþegana sjá hana þannig til fara.

Í þokkabót var um yfirflugfreyjuna að ræða en að sögn indverskra fjölmiðla þá var búningurinn hennar krumpaður, buxurnar snjáðar og þá var hún einnig í óhreinum skóm.

Fluginu frá Bombay til Newark seinkaði um tvær klukkustundir

Flugliðarnir létu flugmennina vita um klæðaburð hennar en samkvæmt starfsreglum Air India, auk annarra flugfélaga, þá þarf áhöfnin að vera klædd í sama búnings og þurfa þeir að líta vel út svo starfsfólkið sé flugfélaginu til sóma.

Fram kemur að flugstjórinn hafi sagt við yfirflugfreyjuna: „Því miður fröken en þú getur ekki verið um borð í þessu ástandi“, en yfirflugfreyjan átti að sjá um First Class farrýmið um borð í vélinni.

Eina klukkustund og 45 mínútur tók að finna aðra flugfreyju í stað hennar og varð næstum 2 tíma seinkun á fluginu sem fór í loftið áleiðis til Newark án hennar.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga