flugfréttir
Þriðja MRJ tilraunaþotan komin til Bandaríkjanna
Þriðja Mitsubishi Regional Jet (MRJ) þotan lenti sl. mánudag á Grant County flugvellinum í Moses Lake
Þriðja Mitsubishi Regional Jet (MRJ) tilraunaþotan er komin til Bandaríkjanna eftir fimm daga flug yfir Kyrrahafið frá Nagoya í Japan.
Vélin fór í loftið frá Nagoya þann 14. desember og hafði viðkomu á eyjunni Guam, á Marshalls-eyjum, í Honolulu og
í San Jose í Kaliforníu á leiðinni en lenti þann 19. desember á Grant County International flugvellinum
í Moses Lake í Washington-fylki.
Vélin mun slást í hóp þeirra tveggja tilraunaþotna sem nú þegar eru komnar til Moses Lake en von er á fjórðu
og síðustu MRJ90 tilraunaþotunni til Bandaríkjanna á næstu dögum.
Flugprófanir á japönsku vélunum mun eiga sér stað í Bandaríkjunum en stefnt er á að vélarnar fái flughæfnisvottun
árið 2018 áður en fyrsta flugfélagið fær fyrsta eintakið afhent sem er ANA (All Nippon Airways).
Fimmta Mitsubishi Regional Jet þotan mun þó ekki fara til Bandaríkjanna þar sem prófanir á henni munu fara fram
í Japan.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.