flugfréttir

Boeing 737 fór út af flugbraut í flugtaki á Indlandi

27. desember 2016

|

Frétt skrifuð kl. 13:23

Vélin var í flugtaki á flugvellinum í Goa í morgun þegar hún fór út af brautinni

Að minnsta kosti 15 farþegar slösuðust er farþegaþota af gerðinni Boeing 737-800 frá Jet Airways rann út af flugbraut í flugtaki á flugvellinum í Goa á Indlandi í morgun.

Vélin var á leiðinni til Bombay með 154 farþega innanborðs og sjö manna áhöfn og var hún í flugtaksbruni þegar hún fór að rása til hægri á brautinni.

Flugmennirnir hættu við flugtakið en náðu ekki að stöðva vélina í tæka tíð og fór hún út af braut, út á graslendi og yfir veg sem liggur í kringum flugbrautina og staðnæmdist með samanfallið nefhjól og með báða hreyfla ofan í jörðu.

Um borð voru 154 farþegar og sjö manna áhöfn

Í yfirlýsingu frá Jet Airways kemur fram að tæknilegt vandamál hafi valdið því að vélin hafi snúist í 360 gráður. Fimmtán farþegar hlutu minnháttar meiðsl þegar verið var að rýma vélina en einhver skelfing greip um sig þegar vélin hallaðist skyndilega fram á við er nefhjólið gaf sig á sama tíma og þeir voru að fara frá borði niður um öryggisrennibrautir.

Flugvellinum í Goa var lokað í kjölfarið og var neyðarteymi sent á staðinn og þá sendu indversk flugmálayfirvöld þrjá rannsóknarsérfræðinga á vettfang til að hefja rannsókn á atvikinu.











  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga