flugfréttir
Gátu bókað hræódýr fargjöld á Business Class vegna villu í bókunarkerfi
Margir farþegar urðu mjög reiðir eftir að flugfélagið komst að mistökunum og leiðrétti verðið á farmiðanum eftir bókun
Villa í bókunarkerfi hjá ítalska flugfélaginu Alitalia gerði það að verkum að þúsundir farþega gátu bókað flug á Business Class farrými á fjölmörgum flugleiðir út um allan heim fyrir brot af þeirri upphæð sem slíkt fargjald kostar.
Starfsmenn í tölvudeild Alitalia voru að uppfæra verðflokk á Business Class farrými á flugi milli Flórens og Dusseldorf
en vegna mistaka þá uppfærði tölvukerfið rangan verðflokk sem færðist yfir á fjölda flugsæta sem gaf farþegum möguleika
á að bóka ótakmarkað tengiflug um allan heim og það um borð í vélum hjá öðrum flugfélögum sem eru í samstarfi
við Alitalia.
Villan spurðist út og fór eins og eldur um sinu eftir að þýsk ferðasíða greindi frá þessum „hagstæðum kjörum“ en
með þessu gátu farþegar ferðast frá Flórens til Dusseldorf með viðkomu í Tókýó, Sydney og Buenos Aires fyrir aðeins
brot af hefðbundnu fargjaldi áður en þeir enduðu ferðalagið í Þýskalandi.
Alitalia náði að grípa inn í og laga villuna í tæka tíð en samt sem áður var fjöldi farþega sem náði að bóka
flugið en flugfélagið gerði sér lítið fyrir og leiðrétti verðið á bókununum sem farþegarnir höfðu bókað en það olli mikilli reiði meðal þeirra sem höfðu stokkið á þetta
„tilboð“.
Einhverjir farþegar hafa hótað að fara í mál við Alitalia fyrir að breyta verðinu eftir bókun á meðan aðrir farþegar
hafa reynt að hætta við bókunina og fá endurgreitt.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.