flugfréttir
Ný flugstöð mun rísa á Stansted-flugvelli
- Verður tekin í notkun árið 2022
Stansted er stærsti flugvöllurinn í Bretlandi sem hefur aðeins eina flugstöð
Stansted-flugvöllurinn á Englandi verður stækkaður með nýrri flugstöð sem ákveðið hefur verið að muni rísa til að koma til móts við fjölgun farþega en London Stansted er stærsti flugvöllurinn í Bretlandi sem hefur aðeins eina flugstöð.
Um er að ræða flugstöð sem verður sérstök komuflugstöð en með flugstöðinni mun Stansted geta tekið við 43 milljónum
farþega á ári en í fyrra fóru 22 milljónir farþegar um flugvöllinn sem er fjórði stærsti flugvöllur Bretlands á eftir
London Heathrow, London Gatwick og flugvellinum í Manchester.
Nýja flugstöðin, sem mun koma til með að kosta 18 milljarða króna, verður 33 þúsund fermetrar á stærð
og á þremur hæðum en til stendur að taka flugstöðina í notkun árið 2022 en eftir það verður núverandi flugstöð notuð sem flugstöð fyrir brottfararfarþega.
Tölvugerð mynd af nýju flugstöðinni
Manchester Airports Group (MAG) keypti Stansted-flugvöllinn árið 2013 en síðan þá hefur það verið stefna fyrirtækisins
að stækka Stansted-flugvöll og gera hann samkeppnishæfari en nú þegar er búið að verja 20 milljörðum króna í
betrumbætur á aðstöðu vallarins.
„Þær fjárfestingar sem við höfum farið út í mun auka samkeppnina og gera hlutverk flugvallarins mikilvægara er kemur að
eflingu hagkerfisins og atvinnulífsins og þá mun stækkunin efla tengsl Bretlands við önnur lönd“, segir Andrew Cowan, framkvæmdarstjóri
Stansted Airport.
Nýja flugstöðin verður tilbúin árið 2022
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.