flugfréttir

Þurftu að lenda á Shannon til að leyfa farþegum að komast á klósettið

27. desember 2016

|

Frétt skrifuð kl. 19:52

Boeing 767 þotan á flugvellinum á Shannon á Írlandi í gær (26. desember)

Flugmenn á breiðþotu af gerðinni Boeing 767 á leið frá Bandaríkjunum til Parísar neyddist til þess að lenda á flugvellinum í Shannon á Írlandi í gær, Annan í jólum, til að leyfa farþegunum að komast á klósettið.

Vélin, sem er frá flugfélaginu OpenSkies, sem er dótturfélag British Airways, var í næturflugi frá Newark í New Jersey til Orly-flugvallarins þegar í ljós kom að ekki var hægt að nota salernin um borð á sama tíma og fjölmargir farþegar þurftu virkilega að nota aðstöðuna.

Vélin var í um 500 kílómetra fjarlægð suðvestur af Írlandi þegar flugstjórinn tilkynnti flugumferðarstjóra um að það væri „alvarlegt salernisvandamál“ komið upp í vélinni og um borð væru 172 farþegar sem þurftu margir nauðsynlega að komast á klósettið.

Salerni um borð í Boeing 767

Flugmaðurinn sagði einnig við flugumferðarstjórana að hann gerði sér fyllilega grein fyrir því að um mjög undarlegt atvik væri að ræða.

Vélin lenti skömmu síðar þar sem þjónustubílar komu að vélinni til að lagfæra salernin um borð en um leið og allir farþegarnir höfðu notað klósettin í flugstöðinni var vélin tilbúin til þess að fara aftur á loft og yfirgaf hún Shannon eftir 2 tíma stopp.

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem farþegaþota neyðist til að lenda á Shannon vegna klósettsvandamáls eftir flug yfir Atlantshafið en árið 2013 þurftu flugmenn hjá Lufthansa að lenda þar í sömu erindagjörðum á leiðinni frá Los Angeles til Munchen.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga