flugfréttir

Talið að ósamhverf vængbörð hafi orsakað flugslysið í Svartahafi

- Búið að ná hreyflum og hjólastelli af hafsbotni

28. desember 2016

|

Frétt skrifuð kl. 15:19

Tupolev Tu-154 þotan fórst skömmu eftir flugtak frá rússnesku borginni Sochi á Jóladag

Fyrstu niðurstöður úr flugrita Tupolev Tu-154 þotunnar, sem hrapaði ofan í Svartahaf á Jóladag, benda til þess að galli í flöpsum hafi verið orsakavaldurinn að slysinu sem átti sér stað skömmu eftir flugtak frá borginni Sochi.

Báðir svörtu kassarnir úr vélinni, flugritinn og hljóðritinn, fundust í gær og hafa rannsóknaraðilar, sem hafa farið yfir gögn úr flugritanum, lýst því yfir að svo virðist sem að flapsarnir hafi ekki hreyfst samtaka á sitthvorum vængnum sem hafi sennilega valdið því að flugmennirnir misstu stjórn á vélinni þegar hún var í flugtaki.

92 voru um borð í vélinni og þar á meðal 64 meðlimir herkórsins Alexandrov Ensemble sem átti að koma fram á skemmtun á gamlárskvöld í rússneskri herstöð í Sýrlandi.

Kafarar hafa fundið hreyfla vélarinnar og hjólastell og hefur því verið náð upp af hafsbotni

Rússnesk vefsíða, sem starfar náið með rússneska hernum, hefur birt síðustu samtölin sem fóru flugmönnunum á milli eftir upptöku úr hljóðrita vélarinnar.

„Speed 300“
„I’ve pulled in the landing gear, commander“
„Oh bloody hell!“

- - Viðvörunarhljóð heyrast - -

„The flaps, hell, what a…!“
„The altimeter…“
„We´re in….. (óheyranlegt)“

- - Viðvörunarhljóð vara við nálægð við jörð - -

„Commander, we´re falling!“


Flugslysið hefur vakið upp margar spurningar varðandi Tupolev Tu-154 þoturnar en þrátt fyrir að engin flugfélög í Rússlandi hafi þær enn í flota sínum þá eru þær enn notaðar af ríkisstjórn Rússlands.

Eina flugfélagið í heiminum sem hefur Tupolev Tu-154 í flota sínum er flugfélagið ALROSA í Hvíta-Rússlandi en félagið mun hætta með vélarnar á næstu vikum.

Tvær Tupolev Tu-154 eru í flota norðurkóreska flugfélagsins Air Koryo en félagið hefur lagt þeim vélum á flugvellinum í Pyongyang og þá hefur Belavia í Hvíta-Rússlandi tekið sínar Tu-154 þotur úr umferð.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga