flugfréttir

Gátu ekki flogið til Reykjavíkur í kvöld með alvarlega veikan sjúkling

- „Núna er komið að því sem búið er að vara við“

28. desember 2016

|

Frétt skrifuð kl. 21:00

Super King Air sjúkraflugvél Mýflugs átti að fljúga til Reykjavíkur með sjúklinginn en í þess í stað var ákveðið að fara með sjúklinginn til Akureyrar

Sjúkraflugvél frá Mýflugi gat ekki flogið til Reykjavíkur í kvöld með sjúkling þar sem ekki voru aðstæður til lendingar á Reykjavíkurflugvelli sökum þess að búið er að loka 06/24 brautinni.

Um forgangsútkall var að ræða og um borð var alvarlega veikur sjúklingur en Þorkell Ásgeir Jóhannsson, flugmaður hjá Mýflugi, segir í samtali við Alltumflug.is að minnsta mál hefði verið að lenda ef 06/24 brautin hefði verið til staðar sem er hin svokallaða „neyðarbraut“ sem var lokað í ágúst.

„Við sóttum einn sjúkling hérna á Austurlandi og áttum að fara með hann suður í fyrsta forgangi en það var bara ekki hægt - Núna er komið að því að þetta er orðið að veruleika sem er margbúið að vara við en það er enginn sem hlustar“, segir Þorkell.

Vélin fór í loftið seinnipartinn í dag frá Egilsstöðum en þegar í ljós kom að ekki var hægt að lenda í Reykjavík var ákveðið að fljúga á Akureyri þar sem vélin lenti með sjúklinginn kl. 19:00.

Ekki hefur verið hægt að lenda á Reykjavíkurflugvelli í dag vegna veðurs

„Á Akureyri er besta sjúkrahúsið utan Reykjavíkur og vonandi dugar það þessum einstaklingi sem þurfti á þessari hjálp að halda“, segir Þorkell.

Aðspurður hvort þarna hefði verið hægt að nota 06/24 brautina, svarar Þorkell: „Aldeilis og við hefðum þurft það. Núna er þetta farið að sýna sig“.

Braut með sömu stefnu í Keflavík ekki ásættanleg lausn

Þorkell segir að mikil áhætta sé fólgin í því að fara nálægt þeim mörkum sem viðkomandi flugvél þolir er kemur að vindstyrk. - „Um leið og vindur er komin yfir 20 hnúta á Faxaflóasvæðinu þá er hann alltaf byljóttur“

Þorkell segir að ástandið sé farið að vera alvarlegt og sé ekki hægt að bæta fyrir lokun neyðarbrautarinnar með opnun á flugbraut á Keflavíkurflugvelli með sömu stefnu.

„Það er hægt að kalla það skárra en ekkert en þá væri verið að bæta við þremur korterum í sjúkraflutningstíma í akstri m.a.v. bestu skilyrði sem er langt frá því að vera ásættanlegt“. „Alltaf þegar við þurfum á 06/24 brautinni á að halda þá er það vegna veðurs og slíkt veður er á sama tíma að hamla akstri á Reykjanesbrautinni“, segir Þorkell.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga