flugfréttir

Helmingur Lufthansa-flotans mun fylla Frankfurt þegar 2017 gengur í garð

- 148 þotur vélar frá Luftahansa munu eyða áramótunum á jörðu niðri

30. desember 2016

|

Frétt skrifuð kl. 07:29

Flugvélar Lufthansa á flugvellinum í Frankfurt

Það verður þröngt á þingi á flugvellinum í Frankfurt á morgun þegar hátt í 150 flugvélar Lufthansa verður lagt í vellinum þar sem félagið mun fljúga frekar fáar flugferðir á þessum síðasta degi ársins.

Það eru ekki margir farþegar sem vilja eyða áramótunum í flugvél í 38.000 fetum og það endurspeglast í bókunum hjá Lufthansa sem mun leyfa 148 flugvélum að hvíla lúin bein á gamlársdag og fram á nýársmorgun en slíkt hefur félagið þurft að gera sl. ár.

Lufthansa segir að það sé mjög krefjandi að koma 148 flugvélum fyrir á einum flugvelli en um er að ræða 55 prósent af öllum flota félagins.

Það er samhæfingarrekstarstöð Lufthansa (Integrated Operations Control Center) sem mun sjá um að skipuleggja hvernig vélunum verður lagt en á meðan allar breiðþotur félagsins fá sitt eigið stæði þá verður vandasamara að koma fyrir 88 stykkjum af öðrum þotum sem eru af gerðinni Airbus A319, A320 og A321.

Lufthansa kallar gamlársdaginn á Frankfurt-flugvelli „traktora-ballettin“ þar sem flugvallarökutæki munu vart hafa undan við að draga vélarnar á sinn stað og ekki líða margar klukkustundir þar til byrjað er að draga vélarnar frá stæði á nýársdag og undirbúa þær fyrir fyrstu flugferðirnar á nýja árinu.

Stjórnstöð Lufthansa segir að allar vélarnar fari að hrúgast upp á flugvellinum þegar líða fer að miðnætti og sé því nauðsynlegt að raða vélunum í þeirri röð að sú fyrsta sem fær stæði verði sú seinasta sem fer í loftið daginn eftir.

Fleiri myndir:









  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga