flugfréttir
Fraktflugfélög hóta að yfirgefa Brussel vegna nýrra laga um hávaðamengun
- Tvö fraktflugfélög hafa ákveðið að færa starfsemi sína frá Brussel-flugvelli
Boeing 747 fraktþota Air Cargo Global á flugvellinum í Brussel
Fimm fraktflugfélög hafa hótað því að yfirgefa flugvöllinn í Brussel og færa starfsemina sína annað ef strangari reglugerðir um hávaðamengun frá flugvellinum verða samþykktar.
Frá og með 1. mars á næsta ári munu ný lög taka í gildi sem munu takmarka flugumferð að kvöld- og næturlagi en að hluta til munu takmarkanirnar
hefjast á nýársdag og verður beitt sektum fyrir þau flug sem munu fljúga um völlinn eldsnemma á morgnanna og seint á kvöldin.
Tvö flugfélög hafa þegar ákveðið að hætta að fljúga um flugvöllinn í Brussel vegna nýju laganna en Saudia Cargo ætlar að fljúga þess í stað
til Frankfurt og Yangtze River Airlines ætlar að færa sig yfir á Schiphol-flugvöllinn í Amsterdam.
Þá eru þrjú önnur félög sem segjast vera að íhuga að gera slíkt hið sama en þau eru Singapore Airlines Cargo, ACG Cargo Global og Asiana Cargo.
Hópur íbúa sem búa nálægt flugvellinum í Brussel segir að flugvöllurinn sé of nálægt byggð m.a.v. þá flugumferð sem fer um völlinn en í nóvember
fóru 1,341 fraktflug um Brussel-flugvöll.
Arnaud Feist, framkvæmdarstjóri flugvallarins í Brussel, telur að fraktflug um flugvöllinn muni dragast saman um allt að 25% vegna nýju
laganna og þá er talið að þetta muni einnig hafa áhrif á farþegaflug.
Farþegaþotur á vegum Brussels Airlines munu frá og með þeim degi sem lögin taka í gildi ekki geta hafið sig á loft milli klukkan 6:00 og 7:00
á morgnana án þess að eiga von á sektum.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.