flugfréttir
Furðulegustu flugfréttirnar á alltumflug.is árið 2016
Það hefur svo sannarlega gengið ýmislegt á í fluginu á árinu sem er nú alveg á enda en hérna koma 20 furðulegustu og undarlegustu fréttirnar.
Þess má geta að tvisvar hafa starfsmenn á flugvelli lokast inn í fraktrými á flugvélum sem voru komnar á loft en sem betur fer fór betur en á horfðist.
Áhafnir Air India hafa sex mánuði til að koma sér í betra form
Og þá kom tvisvar upp að flugstjóri vildi frekar hafa kvenmann sér við hlið í stjórnklefanum en í báðum tilvikunum var um indverska flugmenn að ræða.
Hér kemur listi yfir 20 óvenjulegustu fréttirnar en þeim er raðað eftir vinsældum sem miðast við fjölda þeirra sem smelltu á fréttina.
20
Flugmenn og áhafnir Air India hafa sex mánuði til að koma sér í betra form en eftir það mun félagið segja upp þeim áhafnarmeðlimum sem hafa ekki tekið heilsu og matarræði fastari tökum. ... meira
19
Starfsmaður FedEx sofnaði í fraktþotu og vaknaði á leið til Texas
Starfsmaður hjá FedEx varð fyrir þeirri undarlegri lífsreynslu í gær að hann flaug óvart frá Memphis í Tennessee til Lubbock í Texas eftir að hann tók sér smá blund um borð í Airbus A310 fraktþotu félagsins með þeim afleiðingum að hann steinsofnaði. ... meira
18
Óprúttinn aðili fór inn á ATC-tíðni og gabbaði Boeing 737 í go-around
Farþegaþota í Ástralíu hætti við lendingu í aðflugi að flugvellinum í Melbourne í kjölfar gabbs en í ljós kom að einhver óprúttinn aðili hafði gefið flugmönnum fölsk fyrirmæli í gegnum sömu tíðni og flugumferðarstjórnin notar og beðið vélina um að hætta við lendingu. ... meira
17
Nýtt flugfélag ætlar að gefa helming af gróða sínum til góðgerðarmála
Nýtt flugfélag er nú í burðarliðnum í Bretlandi sem leitar að fjárfestum en hið nýja flugfélag ætlar sér þó að vera frekar öðruvísi en önnur flugfélög þar sem stefna þess er frekar óvenjuleg. ... meira
16
Farþegi varpaði ólöglegu niðurhali á vegginn um borð
Flugfarþega einum á Indlandi brá heldur betur í brún á dögunum er hann varpaði bíómynd af farsíma á vegginn fyrir framan sig um borð í innanlandsflugi. ... meira
15
Maður komst um borð í júmbó-þotu á Heathrow og læsti sig inni í stjórnklefa
Mikill viðbúnaður var á Heathrow-flugvellinum í London í gær eftir að karlmaður komst óáreittur inn í júmbó-þotu British Airways og lokaði sig af inni í stjórnklefa vélarinnar. ... meira
14
Tók óvart vitlaust flug hjá öðru flugfélagi undir öðru nafni
Það eru eflaust ekki mörgum sem tekst að fara um borð í vitlausa flugvél, hjá röngu flugfélagi og það undir röngu nafni. ... meira
13
Flugmaður rekinn fyrir að sýna beint úr stjórnklefanum á Netinu
Flugmaður hjá Air China hefur verið leystur frá störfum eftir að hann streymaði beinni útsendingu á Netinu með spjaldtölvufrá stjórnklefa á farþegaþotu af gerðinni Airbus A330 sem hann flaug. ... meira
12
Vildi frekar hafa flugfreyjuna sér við hlið heldur en aðstoðarflugmanninn
Indverskum flugstjóra hjá SpiceJet hefur verið sagt upp störfum í kjölfar atviks þar sem hann bað aðstoðarflugmanninn um að yfirgefa stjórnklefann til að leyfa honum að vera einum í stjórnklefanum með flugfreyju einni sem settist honum við hlið í sætið hægra megin. ... meira
11
Þurftu að lenda á Shannon til að leyfa farþegum að komast á klósettið
Flugmenn á breiðþotu af gerðinni Boeing 767 á leið frá Bandaríkjunum til Parísar neyddist til þess að lenda á flugvellinum í Shannon á Írlandi í gær, Annan í jólum, til að leyfa farþegunum að komast á klósettið. ... meira
10
Myndband: Flugmaður skríður inn um gluggann til að opna stjórnklefann
Hvað gerist þegar flugmenn læsa lyklana óvart inni í flugvélinni og komast ekki inn í stjórnklefann? - Jú, þeir þurfa að skríða inn um gluggann. ... meira
9
Flugstjóri með ógilt skírteini flaug þotu félagsins og gerðist „laumufarþegi“
Flugstjóri hjá indverska flugfélaginu Jet Airways hefur verið leystur af störfum eftir að í ljós kom að hann hafði flogið sem „laumufarþegi“ um borð í þotu félagsins og þar af flogið vélinni í einhver skipti með ógilt skírteini auk þess sem hann flaug sem farþegi án þess að vera á farþegalista. ... meira
8
Flugstjóri neitaði að fljúga nema hafa ákveðna konu sem co-pilot
Air India rannsakar nú atvik er varðar flugstjóra hjá félaginu sem neitaði að fljúga Airbus A319 þotu félagsins nema hafa ákveðna konu sér við hægri hönd sem einnig starfar sem flugmaður hjá félaginu. ... meira
7
Flugstjórinn var of þreyttur til að halda áfram og lenti í Karachi
Flugstjóri hjá pakistanska flugfélaginu PIA (Pakistan International Airlines) vann sér inn miklar óvinsældir meðal farþega um helgina er hann ákvað að lenda vélinni skyndilega þar sem hann var of þreyttur til að fljúga áfram. ... meira
6
Yfirflugfreyja í óhreinu dressi olli 2 tíma seinkun á flugi með Boeing 777
Seinkun varð á flugi hjá Air India fyrr í þessum mánuði en ástæða seinkunarinnar verður að teljast af undarlegu tagi. ... meira
5
Flugstjóri á Boeing 747 vikið úr starfi fyrir að fljúga 777 án réttinda
Flugmaður hjá taívanska flugfélaginu EVA Air hefur verið sagt upp störfum eftir að hann varð uppvís að því að hafa flogið farþegaþotu af gerðinni Boeing 777. ... meira
4
Myndband: Flugslóði myndast í flugtaki í 45 stiga frosti
Á heiðskírum degi má oft sjá margar flugvélar fljúga yfir landið þar sem þær skilja eftir sig hvítar rákir sem kallast flugslóðar eða „contrails“ á enskri tungu. ... meira
3
Hlaðmaður læstist inni í frakt á Boeing 777 sem fór í loftið með hann til Angóla
Farþegaþota af gerðinni Boeing 777-300ER þurfti að snúa við í gær til Porto í Portúgal eftir að í ljós kom að flugvallarstarfsmaður hafði lokast inni í fraktrými vélarinnar en upp komst um málið þegar vélin var farin í loftið en áfangastaður hennar var Angóla í Afríku. ... meira
2
Airbus-þotu sökkt í Miðjarðarhafið undan ströndum Tyrklands
Gömul farþegaþota af gerðinni Airbus A300 var sl. laugardag dregin út á haf út á Aegean-flóa milli Tyrklands og Grikklands, undan ströndum borgarinnar Izmir, þar sem vélinni var sökkt. ... meira
1
EasyJet hætti við flugtak vegna skiptilykils á vængnum
Farþegaþota af gerðinni Airbus A319 þurfti að hætta við flugtak á flugvellinum í Genf í Sviss í gær eftir að farþegi um borð kom auga á skiptilykil sem var fastur á milli tveggja flapsa á væng vélarinnar. ... meira
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.