flugfréttir
Íranir munu ganga frá samningi vegna kaupa á ATR flugvélum
Tölvugerð mynd af ATR 72-600 flugvél í litum Iran Air
Írönsk stjórnvöld hafa lýst því yfir að þau muni undirrita samning við ATR flugvélaframleiðandann í næstu viku varðandi kaup á 20 farþegaflugvélum en Íranir hafa nú þegar gengið frá samningi við Boeing og Airbus.
ATR tilkynnti í febrúar í fyrra um möguleika á pöntun frá Írönum á tuttugu ATR 72-600 skrúfuflugvélum með kauprétti
á 20 vélum til viðbótar sem munu fara í flota Iran Air.
Forsvarsmenn ATR munu í næstu viku fara til Teheran til að ganga frá samningnum og ef báðir aðilar eru sáttir á
þau atriði sem koma fram í samningnum þá verður hann undirritaður.
Samningurinn á ATR 72-600 vélunum er metinn á 45 milljarða króna en ekki kemur fram hvenær afhendingar munu hefjast.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.