flugfréttir

Rannsaka atvik er þota frá Delta fór yfir flugbraut án leyfis í Shanghai

2. janúar 2017

|

Frétt skrifuð kl. 06:35

Boeing 767 breiðþota Delta Air Lines á Pudong-flugvellinum í Shanghai

Flugmálayfirvöld í Kína rannsaka nú atvik sem átti sér stað á Pudong-flugvellinum í Shanghai sl. fimmtudag er farþegaþota af gerðinni Boeing 767 frá Delta Air Lines ók yfir flugbraut í veg fyrir þotu China Eastern Airlines sem var að fara hefja flugtak.

Vélin frá Delta var nýlent í Shanghai eftir flug frá Tókýó og var að aka í átt að flugstöð en þveraði flugbraut án þess að hafa fengið leyfi frá flugumferðarstjórum sem voru nýbúnir að gefa Airbus A320 þotu China Eastern leyfi til að hefja flugtak.

Flugumferðarstjórarnir náðu að láta China Eastern vélina hinkra og hætta við flugtak og bíða í smástund eftir Delta-vélinni sem var að fara yfir brautina.

Atvikið hafði ekki áhrif á flug um Pudong-völlinn og komu vélarnar ekki nálægt hvor annarri en kínversk flugmálayfirvöld hafa beðið Delta Air Lines um að fara yfir öryggisatriði sín í kjölfar atviksins.

Sérfræðingar eiga eftir að meta atvikið og skera úr um alvarleika þess og verður í framhaldi af því ákveðið hvort að Delta Air Lines verði refsað.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga