flugfréttir

Sex flugvélar lentu óvænt á Shannon milli jóla og nýárs

2. janúar 2017

|

Frétt skrifuð kl. 09:00

Farþegaþota United Airlines á flugvellinum á Shannon

Milli jóla og nýárs komu upp sex atvik þar sem flugvélar þurftu að lenda óvænt á Shannon-flugvellinum á Írlandi en í fimm tilvikum var um að ræða atvik þar sem veikindi komu upp meðal farþega um borð.

Á Nýársdag lenti farþegaþota á Shannon sem var á leiðinni frá Kuwait til JFK-flugvallarins í New York eftir að karlmaður á sjötugsaldri fékk verk fyrir brjóstið en sá farþegi lést skömmu síðar. Vélin hélt för sinni áfram til New York eftir tveggja tíma viðdvöl á Írlandi.

Á gamlársdag var Dreamliner-þota frá TUI komin hálftíma áleiðis til Barbados í Karíbahafi eftir flugtak frá London Gatwick þegar áhöfn um borð lýsti yfir neyðarástandi eftir að eldri kona missti meðvitund.

Vélin í um 250 kílómetra fjarlægð suðaustur af Cork og þurfi vélin að losa sig við eldsneyti fyrir lendingu á Shannon en konan var flutt á sjúkrahús í Limerick við komuna til Írlands.

Á Jóladag lést 10 ára gömul stúlka um borð í flugi Air Canada á leið frá Toronto til London Heathrow eftir að hún veiktist skyndilega en vélin lenti á Shannon-flugvelli skömmu síðar. Hjúkrunarkona var um borð í vélinni en tilraunir til endurlífgunar báru engann árangur.

Þá þurfti farþegaþota frá El Al Israel Airlines að lenda á Shannon-flugvelli á leið sinni frá Tel Aviv til Bandaríkjanna vegna gruns um fósturláts hjá ófrískri konu sem var farþegi um borð og daginn eftir á annan í jólum þurfti Boeing 767 þota frá Open Skies að lenda óvænt til að hleypa farþegum á klósettið vegna vandamáls með salernin um borð í vélinni.

Síðastliðinn föstudag (30. desember) þurfti flugvél frá British Airways að lenda á Shannon-flugvelli á leið sinni frá Miami til London vegna veikinda um borð og þá var farþegaþota frá Ethiopian Airlines sem þurfti að lenda á Shannon á aðfangadag til að taka eldsneyti þar sem flugvöllurinn í Dublin var búinn að loka starfsemi sinni yfir jólin.

Þar að auki þurftu sex flugvélar að lenda á Shannon á Þorkláksmessu þar sem veðuraðstæður voru of slæmar til að lenda á Cork og í Dublin.

Um 60 flugvélar þurftu að lenda á Shannon-flugvelli árið 2016 en helmingur þeirra tilfella voru vegna veikinda eða bráðatilvika en hinn helmingur atvikanna var vegna tæknilegra örðuleika, skyndilendingar tengdar veðri eða af öryggisástæðum.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga