flugfréttir
Bráðabirgðarskýrsla gefin út vegna flugslyssins í Kólumbíu
- Eldsneytisskortur talin hafa verið orsök slyssins
Vélin sem fórst var af gerðinni Avro RJ85
Flugmálayfirvöld í Kólumbíu hafa gefið út bráðabirgðarskýrslu varðandi flugslysið er farþegaþota af gerðinni Avro RJ85 frá LaMia Bolivia fórst í aðflugi að flugvellinum í Medellín í Kólumbíu þann 28. nóvember sl.
Tuttugu og þrír rannsóknaraðilar frá Kólumbíu, Brasilíu, Bólivíu, Bretlandi og frá Bandaríkjunum koma að rannsókn slyssins en niðurstöður
rannsóknarinnar eru byggðar á viðtölum við þá sem lifðu slysið af, viðtölum við sjónarvotta auk gagnaöflunnar úr flugritum vélarinnar og
rannsóknarvinnu sem hefur farið fram á slysstað.
Samkvæmt bráðabirgðarskýrslunni þá er það mat sérfræðinga að eldsneytisskortur hafi verið meginorsöks slyssins og sé ekkert sem bendir til þess að nein tæknileg vandamál eða galli af neinu tagi hafi verið orsökin.
Rannsókn slyssins mun í framhaldi af þessu beinast að starfsemi flugfélagsins, eftirliti með öryggismálum og rekstrardeild félagsins, áætlunargerð
er snertir eldsneytismál og ákvörðunartöku í flugrekstrardeild innan LaMia.
77 voru um borð í vélinni, 73 farþegar og fjögurra manna áhöfn, en meðal þeirra sem voru um borð var brasilíska fótboltaliðið Chapecoense.
Aðeins sex manns lifðu slysið af.
Flugmálayfirvöld í Kólumbíu eiga von á því að lokaskýrsla flugslyssins verði birt í apríl í vor.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.