flugfréttir
Fimmta Airbus A320neo afhent til Lufthansa
Lufthansa hefur nú fengið alls fimm Airbus A320neo þotur afhentar frá Airbus
Lufthansa hefur nú tekið við sinni fimmtu Airbus A320neo þotu en vélin var afhent þann 29. desember frá verksmiðjum Airbus í Hamborg.
Lufthansa á von á því að fá rekstrar- og farþegaflugsleyfi fyrir fimmtu A320neo þotunni á allra næstu dögum en vélinni verður í dag flogið til Frankfurt
þar sem vélin mun koma til með að hafa sína bækistöð.
Flugfélagið þýska á von á því að fá tíu Airbus A320neo þotur afhentar á árinu 2017 en fyrsta vélin var afhent til Lufthansa þann 20. janúar
árið 2016 og hafa fjórar slíkar vélar verið notaðar bæði í innanlandsflugi í Þýskalandi og í flugi t.a.m. til Oslóar, Stokkhólms og Barcelona.
Lufthansa á von á 56 Airbus A320neo þotum til viðbótar en þá mun félagið einnig fá 40 eintök af stærri gerðinni, Airbus A321neo.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.