flugfréttir

Flugvallarstarfsmaður lokaðist í frakt á Embraer-þotu í 90 mínútna flugi

- Mátti dúsa í fraktrýminu frá Charlotte til Washington Dulles

3. janúar 2017

|

Frétt skrifuð kl. 18:52

Embraer E170 þota United Express

Hlaðmaður á flugvellinum í Charlotte í Norður-Karólínu lokaðist inn í fraktrými á Embraer E170 þotu á nýársdag í innanlandsflugi í Bandaríkjunum og mátti hann dúsa þar inni þar til vélin lenti á Dulles-flugvellinum í Washington.

Vélin, sem er á vegum Mesa Airlines, var að fljúga á vegum United Express en flugtíminn var 1:30 klukkstund. Starfsmaðurinn, sem er 45 ára gamall, var ekki meint af ferðalaginu.

Starfsmaðurinn, sem er 45 ára gamall, heitir Reginald Gaskin en hann vildi ekki tjá sig um það hvernig hann lokaðist inni í frakrými vélarinnar en hann sagði þó að hann þakkaði Guði fyrir sem var með honum alla leið.

Samkvæmt Flightradar24.com þá fór vélin upp í 27.000 feta hæð á leiðinni en þegar starfsmenn á Charlotte-flugvelli gerðu sér grein fyrir að Gaskin væri sennilega um borð í vélinni þá var hún komin í loftið.

Starfsmönnum Dulles-flugvallarins var tilkynnt að mögulega væri flugvallarstarfsmaður frá Charlotte inni í fraktinni og kom í ljós að svo reyndist vera þegar vélin var lent.

Neyðarteymi beið vélarinnar og var Gaskin frelsaður frá borði og hafa bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) hafið rannsókn á atvikinu en fram kemur í yfirlýsingu frá United Express að Gaskin hafi verið heill á húfi.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga