flugfréttir
El Al Israel Airlines fær sinn fyrsta flughermi
- Þurfa ekki lengur að þjálfa Boeing 737 flugmenn erlendis
Um er að ræða fyrsta flugherminn fyrir El Al Israel Airlines
Ísraelska flugfélagið El Al Israel Airlines hefur loksins fengið sinn fyrsta flughermi en hingað til hefur þjálfun áhafna hjá félaginu farið fram erlendis.
„Í dag erum við stolt af því að loksins erum við komin í hóp þeirra flugfélaga sem eiga sinn eigin flughermi sem mun spara
okkur mikinn tíma sem fer í að þjálfa flugmenn okkar í öðrum löndum“, segir David Maimon, framkvæmdarstjóri El Al.
Um er að ræða Boeing 737 flughermi en flugfélagið ísraelska hefur fimmtán Boeing 737-800 þotur í flotanum
og átta vélar af lengstu gerðinni, Boeing 737-900ER.
Flughermirinn var formlega tekinn í notkun í gær við hátíðlega athöfn að viðstöddum yfirmönnum El Al Israel Airlines, yfirflugstjórum
og yfirmönnum yfir þjálfunardeild félagsins.
Flughermirinn er framleiddur af MPS Multi Pilots Simulations í Hollandi sem framleiðir m.a. flugherma fyrir Douglas DC-3.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.