flugfréttir
Þota Aeroflot fór út af braut í lendingu
Vélin var að lenda í Kaliningrad eftir flug frá Moskvu í gær þegar hún fór út af brautinni
Farþegaþota frá Aeroflot af gerðinni Airbus A321 fór út af flugbraut í lendingu í Kaliningrad í Rússlandi í gær eftir flug frá Sheremetyevo-flugvellinum í Moskvu.
Lendingin sjálf gekk eðlilega fyrir sig en snörp vindhviða er talin hafa feykt vélinni til og frá á brautinni þegar hún var að hægja
á sér með þeim afleiðingum að vélin fór út af braut.
Nefhjól vélarinnar féll saman og voru farþegar látnir yfirgefa vélina út um neyðarrennibrautir en um borð var 171 farþegi og sjö
manna áhöfn.
Flugvellinum var lokað í sex klukkustundir í kjölfar atviksins en fram kemur að auk hvassviðris þá hafi bremsuskilyrði á brautinni
verið slæm.
Engann sakaði um borð en vélin varð fyrir minniháttar skemmdum.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.