flugfréttir
Myndband: Aðflug að BIRK úr stjórnklefa hjá Atlantic Airways
- 4:30 klst langur mynddiskur komin út um færeyska flugfélagið
Útsýnið yfir IKEA, Reykjanesbrautina og Garðabæ í aðfluginu að Reykjavíkurflugvelli
Justplanes.com hefur birt stutt en þó skemmtilegt myndband sem sýnir aðflugið að braut 01 á Reykjavíkurflugvelli út um stjórnklefann á Airbus A319 þotu Atlantic Airways eftir klukkutíma langt flug frá Færeyjum.
Myndbandið var tekið í fyrra og er aðeins brot af mynddiski sem Justplanes.com hefur gefið út með yfir 4:30 klukkustunda löngu
efni um Atlantic Airways.
Meðal þess sem er að finna á disknum er myndband úr stjórnklefa í flugferð frá Vágar til Reykjavíkur og til baka
auk myndbanda úr flugi til Bergen og til Kaupmannahafnar.
Myndefnið sem tekið er í stjórnklefa er tekið upp með allt að sex mismunandi myndavélum og þá er fylgst með undirbúningi
fyrir flug meðal áhafna, sýnt er þegar farið er yfir tékklista og vélin undirbúin fyrir brottför og farið ítarlega yfir flugleiðina á leiðinni ásamt fleiru skemmtilegu efni.
Mynddiskurinn kostar 30 bandaríkjadali en þeir hjá Justplanes.com eru fremstir er kemur að þáttagerð og myndatökum
um borð í flugi hjá flugfélögunum og eru þau fá flugfélögin sem fyrirtækið hefur ekki tekið fyrir í þáttum sínum og er Icelandair þar á meðal.
Á vefsíðu Justplanes.com má fræðast meira um myndbandið
Myndband:
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.