flugfréttir
GECAS pantar 75 Boeing 737 MAX 8 þotur
- Boeing fékk pöntunina rétt áður en nýtt ár gekk í garð
Tölvugerð mynd af Boeing 737 MAX í litum GECAS
Boeing náði að ljúka árinu 2016 með stórri pöntun frá flugvélaleigunni GECAS sem barst á seinustu stundu áður en nýtt ár gekk í garð en flugvélaleigan hefur pantað 75 eintök af Boeing 737 MAX 8.
Pöntunin er metin á 8.25 milljarða bandaríkjadali sem samsvarar 929 milljörðum króna en þetta er í þriðja skiptið
sem GECAS pantar Boeing 737 MAX þotur.
GECAS pantaði fyrst 75 Boeing 737 MAX þotur árið 2012 og tveimur árum síðar, árið 2014, lagði fyrirtækið inn pöntun
í tuttugu 737 MAX þotur til viðbótar og á GECAS því von á 170 þotum af þessari gerð á næstu árum.
Enginn viðskiptavinur hefur pantað eins mörg eintök af Boeing 737 MAX 8 eins og GECAS en Norwegian hefur næst stærstu
pöntunina í þessa tegund með pöntun í 108 eintök.
Boeing 737 MAX mun koma á markaðinn um mitt þetta ár en það er Southwest Airlines sem verður fyrsta flugfélagið til að fá
fyrsta eintakið afhent.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.