flugfréttir
Ekki tókst að koma fjórðu MRJ-þotunni til Bandaríkjanna
Mitsubishi Regional Jet (MRJ) tilraunaþota lendir á flugvellinum í Moses Lake í Washington-fylki í Bandaríkjunum
Japanski flugvélaframleiðandinn Mitsubishi Aircraft náði ekki að ferja fjórðu Mitsubishi Regional Jet (MRJ) tilraunaþotuna yfir til Bandaríkjanna eins og áætlað var fyrir lok ársins 2016.
Flugprófanir með MRJ þotuna munu fara fram í Moses Lake í Washington-fylki í Bandaríkjunum en fyrstu þotunni var flogið
til Ameríku í september en önnur þotan var ferjuð yfir í nóvember og sú þriðja í desember.
Mitsubishi Aircraft segir að til stóð að fljúga þeirri fjórðu yfir fyrir áramót en það hafi tafist vegna veðurs en tekið er fram
að ástæðan sé ekki eitthvað sem varðar vélina sjálfa.
Flugvélaframleiðandinn hefur reynt að flýta fyrir flugprófunum til öryggis þar sem möguleg vandamál geta alltaf komið upp
sem seinka tilraunaferlinu og vill Mitsubishi Aircraft með því hafa vaðið fyrir neðan sig.
Mitsubishi hefur nú þegar varað ANA (All Nippon Airways) við mögulegum seinkunum en flugfélagið japanska á von á því að
fá fyrsta eintakið af vélinni afhent um mitt árið 2018.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.