flugfréttir
Flugstjóri sem sofnaði áfengisdauða í stjórnklefa sagt upp störfum
- Fær ekki að fljúga meira í Kanada
Boeing 737-800 þota Sunwing
Ölvaður flugmaður, sem var handtekinn á gamlársdag, skömmu áður en hann átti að fljúga farþegaþotu frá Calgary í Kanada til Mexíkó, hefur verið sagt upp störfum en hann var um helgina látinn laus úr fangelsi gegn 112.000 króna tryggingu en þurfti að skilja vegabréfið sitt eftir hjá lögreglu.
Flugmaðurinn, sem er 37 ára, heitir Miroslav Gronych en hann starfaði fyrir flugfélagið Travel Service en kandadíska flugfélagið
Sunwing hefur haft eina Boeing 737-800 þotu á leigu frá tékkneska flugfélaginu.
Vélin átti að fara í loftið frá Calgary áleiðis til Cancun í Mexíkó á gamlársdag með 99 manns um borð en áhöfnin
og flugvallarstarfsmenn við landganginn höfðu gert athugasemd við undarlegt hátterni flugmannsins en aðstoðarflugmaðurinn kom síðar að honum þar sem hann hafði sofnað áfengisdauða í flugstjórasætinu.
Miroslav Gronych hefur flogið Boeing 737 í nokkur ár hjá Travel Service
Yfirvöldum var gerð viðvart og var hann handtekinn og borinn frá borði og var yfirheyrður eftir að runnið hafði af honum en við áfengispróf
kom í ljós að áfengismagn í blóðinu var umtalsvert.
Miroslav hefur nú verið kærður fyrir tilraun til að fljúga flugvél undir áhrifum áfengis og þá hefur honum verið sagt upp störfum hjá Travel Service og þar að auki fær hann
ekki framar að fljúga í Kanada.
Strangar reglur gilda í Kanada um áfengisneyslu flugmanna líkt og í öðrum löndum en samkvæmt reglugerð mega flugmenn ekki neyta áfengis 8 tímum áður en þeir mæta til vinnu
en starfsreglur Sunwings eru strangari þar sem þær kveða á um að flugmenn neyti ekki áfengis í 12 klukkustundir áður en þeir
mæta til vinnu.
Miroslav hafði starfað hjá Travel Service í nokkur ár en flugfélagið tékkneska segir þetta atvik vera mjög sjaldgæft og um einsdæmi
að ræða.
Samgönguyfirvöld í Slóvakíu ætla að athuga hvort að eitthvað hafi brugðist hjá Travel Service er kemur að þjálfun flugmanna.
Edward McKeogh, hjá samgönguöryggisráðgjöf Kanada, segir að þrátt fyrir að nokkrum sinnum á ári komi upp atvik þar
sem flugmenn eru gómaðir ölvaðir þá sé þetta eitt svæsnasta tilvikið sem hann hefur heyrt um.
„Vonandi mun hann leita sér hjálpar og fara í meðferð áður en hann fær að fljúga á ný“, segir McKeogh.
Um 410 flugmenn fljúga fyrir Sunwing en um 60 af þeim eru erlendir flugmenn sem eru ráðnir sem verktakar á meðan 350
flugmenn eru fastráðnir, kanadískir flugmenn.
Réttað verður yfir Miroslav síðar í mánuðinum en honum er gert að mæta í dómsal þann 25. janúar.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.