flugfréttir
Kínversk flugfélög sækjast í flugmenn frá Ástralíu
- Reyndum flugmönnum boðið allt að þreföld hærri laun
Kínversk flugfélög hafa boðið reyndum erlendum flugmönnum allt að þreföld laun m.a.v. hvað þeir hafa haft í sínu heimalandi
Fjölmargir ástralskir flugmenn hafa flutt sig um set til Kína og ráðið sig til starfa hjá kínversku flugfélögunum en gríðarleg eftirspurn eftir flugmönnum þar í landi hefur heillað marga flugmenn í Ástralíu og aðra flugmenn víðar í heiminum.
Kínversk flugfélög hafa boðið áströlskum flugmönnum allt að tvöfalt hærri laun en ástralskir flugstjórar með mikla reynslu
eru með að meðaltali um 1,3 milljón í mánaðarlaun fyrir skatta en kínversk flugfélög hafa boðið sumum þeirra allt að 2,6 milljónir
í mánaðarlaun skattfrjálst séu þeir til í að flytja búsetum.
Einn af þeim áströlskum flugmönnum sem hefur hafið störf í Kína er Steve Folpp en hann hafði áður flogið m.a.
einkaþotu fyrir forsetisráðherra Ástralíu áður en hann ákvað að leita á önnur mið.
„Lífið hérna er frekar öðruvísi en samt mjög spennandi og þetta er mjög góð lífsreynsla og
þú getur ekki sagt nei við peningnum“, segir Steve sem flutti til Kína fyrir þremur árum.
Fjölmargir flugmenn hafa farið til Kína til að fljúga fyrir kínversk flugfélög að undanförnu
Um 50.000 atvinnuflugmenn starfa nú í Kína og þúsundir eru í atvinnuflugmannsnámi þar í landi en það er þó langt frá því að vera
nóg fyrir þann fjölda sem Kína þarf á að halda á næstu árum.
Ástralinn Douglas Ward hefur starfað hjá fyrirtækinu Wasinc International sem aðstoðar við starfsmannaráðningar fyrir kínversku
flugfélögin en hann segir að ástralskir flugmenn njóti vissra forréttinda þar sem þeir eru eftirsóttir í Kína.
„Það er eins og Sydney og Melbourne séu þeir staðir sem Kínverjar leita fyrst til og þeir eru vanir að ferðast þangað og yfirleitt
eru þessar borgir fyrstu áfangastaðirnir sem kínversk flugfélög fljúga til erlendis“, segir Ward sem spáir því að eftirspurnin eftir flugmönnum í Kína
muni halda áfram að vera mikil næstu áratugina.
Ward segir það geti samt verið erfitt fyrir suma flugmenn að koma til að starfa í Kína þar sem menningarsjokkið getur tekið á
og svo getur mengunin verið þeim íþyngjandi.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.