flugfréttir

Tillaga um að neyðarbrautin verði opnuð á ný verður lögð fram eftir helgi

- Framsókn og flugvallarvinir vilja að 06/24 brautin verði opnuð á ný

6. janúar 2017

|

Frétt skrifuð kl. 15:49

Flugbrautarmerkingar á Reykjavíkurflugvelli þann 28. desember sl.

Framsókn og flugvallarvinir ætla að leggja fram formlega tillögu eftir helgi um að viðræður muni hefjast við Reykjavíkurborg og innanríkisráðuneytið um að hin svokallaða „neyðarbraut“ (06/24) á Reykjavíkurflugvelli verði opnuð á ný.

Fjölmargir aðilar innan flugsins á Íslandi hafa lýst yfir áhyggjum sínum varðandi þau áhrif sem lokun brautarinnar hefur nú þegar haft og þá sérstaklega í kjölfar þess er sjúkraflugvél frá Mýflugi þurfti að fljúga með veikan sjúkling frá Höfn í Hornafirði til Akureyrar í stað Reykjavíkur milli jóla og nýárs.

Næstkomandi þriðjudag, þann 10. janúar, verður lögð fram tillaga á borgarstjórnarfundi um að viðræður hefjist milli borgarstjóra og innanríkisráðherra um að flugbrautin verði opnuð á ný og hafð opin a.m.k. fram á vor.

Framsókn og flugvallarvinir segja að alvarlegt mál sé að hafa brautina lokaða á meðan engin önnur úrræði eru í boði þegar kemur að því að fljúga með veika sjúklinga til Reykjavíkur við viss veðurskilyrði.

Fyrir áramót komu upp nokkur tilvik þar sem lægðir gengu yfir landið með hvassri suðvestanátt en við slík skilyrði er 06/24 brautin oftast eina brautin sem hægt er að lenda á en á meðan hún er ekki í boði lokast suðvesturhorn landsins fyrir sjúkraflug þar sem lendingarskilyrði á hinum tveimur flugbrautunum eru ekki ákjósanleg.

Fjórir mánuðir eru eftir af vetri og hafa janúar, febrúar og mars einkennst af lægðagangi með hvassri vindátt þar sem suðvestanátt er ríkjandi en fjölmagir flugmenn og þ.á.m. sjúkraflugmenn hafa lýst því yfir að aðeins er tímaspursmál hvenær ekki verður hægt að koma alvarlega veikum sjúklingi undir læknishendur þar sem eina læknisaðstoðin sem dugar viðkomandi sjúklingi er að fá í Reykjavík.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga