flugfréttir
Talið að Boeing 737 hafi flogið á dróna í aðflugi
Skemmdirnar á nefi vélarinnar sem komu í ljós eftir lendingu
Talið er að farþegaþota af gerðinni Boeing 737 hafi flogið á dróna í gær er hún var í innanlandsflugi í Mozambique í Afríku.
Fjölmörg atvik hafa komið upp þar sem fjarstýrðum flygildum er flogið of nálægt flugvélum en sjaldgæfara er að það komi
upp að drónar hafa rekist á flugvélar en nokkrum sinnum sl. misseri hefur það átt sér stað en í sumum tilfellum hefur ekki verið staðfest að um dróna hafi verið að ræða.
Atvikið í gær átti sér stað er Boeing 737-700 þota frá LAM (Linhas Aéreas de Mocambique) var í aðflugi að flugvellinum í borginni Tete
í norðurhluta landsins eftir flug frá höfuðborginni Maputo.
Flugmenn vélarinnar sögðust hafa heyrt skell utan á nefi vélarinnar er þeir voru í aðfluginu en við skoðun eftir lendingu komu
í ljós skemmdir hægra megin á nefinu.
80 farþegar og sex manna áhöfn var um borð í vélinni en áreksturinn við drónann hafði ekki áhrif á aðflugið og gekk lendingin
vel fyrir sig.
Flugfélagið þurfti að senda aðra þotu til Tete til að sækja þá farþega sem áttu bókað næsta flug með vélinni til Maputo.
Hvorki flugvöllurinn né flugfélagið hafa gefið út tilkynningu vegna atviksins en flugmálayfirvöld í Mozambique rannsaka nú málið.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.