flugfréttir

Boeing fékk pantanir í 668 þotur árið 2016 - Náðu ekki takmarkinu sínu

- Afhentu 748 þotur á árinu sem leið

10. janúar 2017

|

Frétt skrifuð kl. 13:25

Boeing 747 í samsetningu í verksmiðjunum í Everett

Boeing náði ekki takmarki sínu árið 2016 sem var að fá pantanir í 740 flugvélar en alls voru 668 þotur pantaðar frá flugvélarisanum á seinasta ári eða 72 vélum færri en það sem stefnt var að.

Pantanirnar í þoturnar 668 árið 2016 eru metnar á 94.1 milljarð bandaríkjadali sem samsvarar tíu þúsund sjöhundruð sextíu og einum milljarði króna.

Pantanirnar skiptast niður í 550 eintök af Boeing 737 en af þeirri tegund voru pöntuð 534 eintök af nýju Boeing 737 MAX og sextán eintök af núverandi tegund, Boeing 737 Next Generation.

Þá fékk Boeing árið 2016 pantanir í sautján júmbó-þotur af gerðinni Boeing 747-8, sextán breiðþotur af gerðinni Boeing 767, sautján Boeing 777 þotur og 58 eintök voru pöntuð af Dreamliner-þotunni.

Boeing 777 framleiðslan í Everett

Afhendingaráætlun Boeing stóðst hinsvegar en markmiðið var að afhenda milli 745 og 750 þotur árið 2016 en Boeing afhenti 748 þotur á árinu.

Á árinu 2016 var hætt við pantanir í 151 Boeing 737 þotu, eina Boeing 747-8, sex Boeing 777 og 22 Dreamliner-vélar og var því alls hætt við pantanir í 180 flugvélar á árinu.

Á síðasta degi ársins 2016 stóð verkefnastaða Boeing í 5.715 þotur sem framleiðandinn á eftir að smíða á næstu árum og áratugum.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga