flugfréttir

Nýja Beluga XL flutningavél Airbus tekur á sig mynd

10. janúar 2017

|

Frétt skrifuð kl. 14:19

Airbus ætlar að smíða fimm Beluga XL flutningavélar og verða gömlu Beluga-vélarnar teknar úr umferð árið 2025

Fyrsta eintakið af nýju Beluga-flutningavélinni hjá Airbus er farið að taka á sig mynd í verksmiðjunum í Tououse en Beluga XL verður flogið í fyrsta sinn árið 2018 og tekin í notkun árið 2019.

Beluga XL byggir á Airbus A330-200 vélinni og er hluti af skrokk vélarinnar tilbúin með vængjum og býður þess að sameinast yfirbyggingunni af Beluga-búknum ásamt nefhluta og stéli.

Fyrstu 12 mánuðirnir fara í samsetningu og næstu sex mánuðir fara í prófanir á jörðu niðri auk þess sem hreyflanir verða festir á vængina á næsta ári.

Airbus tilkynnti í nóvember árið 2014 að til stæði að smíða fimm nýjar Beluga-flutningavélar en Beluga-vélarnar hafa verið notaðar til að ferja flugvélahluti milli verksmiðja.

Fyrsta Beluga XL í samsetningu í Toulouse

Fyrsta Beluga XL vélin verður tilbúin árið 2019 og mun hún koma til með að flytja t.a.m. vængi fyrir Airbus A350 til Toulouse en núverandi Beluga-vélar verða teknar úr umferð árið 2025 en þær voru byggðar á Airbus A300 vélinni og eru komnar til ára sinna.

Engin flugvél er eins flókin í smíðum hjá Airbus eins og Beluga XL vélin og þarf að bora mun fleiri göt fyrir festingar og hnoð en gert er á hefðbundnum farþegaþotum sem framleiðandinn smíðar í dag.

Beluga XL samanstendur af 2.000 mismunandi íhlutum sem mynda skrokk vélarinnar en framleiðsla á þeim pörtum fer fram í verksmiðjum Aernnova í Gasteiz, Toledo og í Cadiz á Spáni en vélin verður einnig framleidd í verksmiðjum í Saint Nazaire, Nantes og í Hamborg.

Beluga XL mun fljúga sitt fyrsta flug árið 2018









  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga