flugfréttir
Gert ráð fyrir að 8,7 milljónir fari um Keflavíkurflugvöll í ár
- 6.8 milljónir fóru um Keflavíkurflugvöll árið 2016
6.8 milljónir farþega fóru um Keflavíkurflugvöll í fyrra
Árið 2016 fóru 6.821.358 farþegar um Keflavíkurflugvöll, tveimur milljónum fleiri farþegar en árið 2015 og hefur farþegafjöldinn aldrei verið meiri og er um að ræða 40% aukningu á milli ára.
Mest er fjölgunin á meðal skiptifarþega og á meðal farþega sem ferðast utan sumartímans en farþegarnir skiptust í 2.318.293 komufarþega, 2.304.261 brottfararfarþega og 2.198.804 skiptifarþega.
Farþegaspá Isavia gerir ráð fyrir áframhaldandi fjölgun farþega á þessu ári og verður hún með svipuðum hætti, þ.e. mest utan álagstíma en spáin gerir ráð fyrir 8,75 milljónum farþega árið 2017.
Árstíðarsveiflan minnkar
Isavia hefur lagt sérstaka áherslu á að markaðssetja flugvöllinn og Ísland sem heilsársáfangastað og þá meðal annars með því að bjóða afslátt af þjónustugjöldum utan sumartíma þegar flugfélög opna nýja heilsársleið og er það í takt við áherslur ferðaþjónustunnar á Íslandi sem hefur skilað þeim árangri að nú er ferðaþjónustan orðin að heilsársatvinnugrein.
Gert er ráð fyrir að farþegum
um Keflavíkurflugvöll muni aftur fjölga um 2 milljónir í ár
Með þessu nýtast allir innviðir mun betur, bæði flugvöllurinn og aðrir mikilvægir innviðir ferðaþjónustunnar. Auk þess að minnka árstíðarsveifluna hefur tekist að dreifa umferðinni betur yfir sólarhringinn en það hefur orðið til þess að nýta mun betur innviði á Keflavíkurflugvelli, en þar voru nánast engir farþegar utan álagstíma fyrir nokkrum árum.
Stöðugar framkvæmdir við Keflavíkurflugvöll
Þrátt fyrir betri nýtingu flugstöðvarinnar hafa miklar framkvæmdir staðið yfir á Keflavíkurflugvelli undanfarin ár og eru enn meiri framkvæmdir fyrirhugaðar en nú styttist í að Flugstöð Leifs Eiríkssonar verði stærsta mannvirki á Íslandi sem opið er almenningi, en það gerist þegar 7.000 fermetra viðbygging við suðurbyggingu flugstöðvarinnar verður tekin í notkun.
Að þeirri framkvæmd meðtalinni hefur samtals verið fjárfest fyrir 15 milljarða í afkastaaukandi framkvæmdum á flugvellinum síðan 2015. Meðal verkefna má nefna 10.000 fermetra stækkun flugstöðvarinnar, nýtt og afkastameira farangursflokkunarkerfi, ný flugvélastæði og endurnýjun flugbrauta auk annarra verkefna.
Gríðarleg fjölgun starfa
Samkvæmt skýrslu sem Isavia gaf út í október síðastliðnum hefur þessi mikla fjölgun farþega um Keflavíkurflugvöll mjög jákvæð áhrif á þjóðarbúið en farþegar sem koma og fara eru grunnurinn að vexti ferðaþjónustunnar, sem orðin er stærsta útflutningsgrein þjóðarinnar.
Breiðþotur Icelandair og WOW air á Keflavíkurflugvelli í júní 2016
En skiptifarþegar, þeir sem koma ekki inn í landið, skipta líka miklu máli. Notkun íslensku flugfélaganna á Keflavíkurflugvelli sem tengipunkti á milli fjölda áfangastaða í Evrópu og Norður-Ameríku er grundvöllur þessa mikla vaxtar.
Skiptifarþegar skila einnig nánast jafnmörgum beinum störfum á flugvellinum og komu- og brottfararfarþegar eða um 0,8 á hverja 1000 farþega. Því má gera ráð fyrir að beinum störfum á Keflavíkurflugvelli hafi fjölgað um 1.600 á nýliðnu ári og þeim muni fjölga um álíka marga á þessu ári.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.