flugfréttir

Ryanair hirðir titilinn „stærsta flugfélag Evrópu“ af Lufthansa

10. janúar 2017

|

Frétt skrifuð kl. 17:31

Flugvélar Ryanair og Lufthansa Regional á flugvellinum í Birmingham

Lufthansa er ekki lengur stærsta flugfélagið í Evrópu en Ryanair hefur formlega hrifsað þann titil af flugfélaginu þýska er kemur að fjölda farþega.

Fyrir tveimur árum síðan, árið 2015, flugu 107 milljónir farþega með Lufthansa sem var mesti farþegafjöldi sem evrópskt flugfélag hafði flutt en Ryanair fylgdi fast á eftir með 101 milljón farþega.

Árið 2016 tók Ryanair fram úr Lufthansa með 15 prósenta farþegaaukningu og flugu 117 milljónir með félaginu á meðan aðeins varð 1,8% aukning hjá Lufthansa sem hækkaði sig úr 107 upp í 109 milljónir farþega á árinu.

Lufthansa lítur samt sem áður björtum augum til ársins 2017 þrátt fyrir að verðhækkun á þotueldsneyti muni verða til þess að Lufthansa mun þurfa að greiða 48 milljarða í ár til viðbótar fyrir eldsneyti á flugflotann sinn vegna hækkunarinnar.

Eurowings, dótturfélag Lufthansa, mun koma til með að vaxa hratt á þessu ári með tilkomu yfirtöku Lufthansa á Brussels Airlines.

Önnur lágfargjaldafélög hafa einnig veitt Ryanair samkeppni á árinu en 14% aukning varð á farþegafjölda hjá Norwegian og farþegum með Wizz Air fjölgaði árið 2016 um 19 prósent.

Ekki varð eins mikil fjölgun farþega hjá easyJet þar sem margir farþegar forðuðust suma áfangastaði af ótta við hryðjuverkaárásir en 74 milljónir flugu með easyJet sem er 6,6% aukning frá árinu 2015.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga