flugfréttir

Tillaga um viðræður við ríkið um opnun á 06/24 brautinni felld

- „Við erum pólitíkusar en ekki fagaðilar - Við eigum að hlusta á fagaðila“

10. janúar 2017

|

Frétt skrifuð kl. 20:57

Lögð var fram tillaga borgarfulltrúa Framsóknar og flugvallarvina um viðræður borgarstjóra og innanríkisráðherra um tímabundna opnun NA-SV brautar Reykjavíkurflugvallar fyrir sjúkraflug

Borgarstjórn Reykjavíkurborgar samþykkti ekki tillögu borgarfulltrúa Framsóknar og flugvallarvina um að borgarstjóri ræði við innanríkisráðherra og veiti ríkinu heimild til að opna á ný hina svokölluðu „neyðarbraut“ (braut 06/14) á Reykjavíkurflugvelli fyrir fyrir sjúkraflug fram á vor.

Guðfinna Jóhanna Guðmundsdóttir, oddviti Framsóknar og flugvallarvina, var harðorð í dag á borgarstjórnarfundi þar sem hún greindi frá því mikilvæga hlutverki sem 06/24 brautin gegnir á veturnar og nefndi m.a. þau tvö tilvik sem hafa komið upp nýlega milli jóla og nýárs þar sem sjúkraflugvél gat ekki lent með veikan sjúkling í Reykjavík sem hefði að öðru leyti verið hægt ef 06/24 brautin hefði verið opin.

Guðfinna skoraði á að pólitískar skoðanir yrðu færðar til hliðar og brautin yrði opnuð þar sem hún er til staðar og sérstaklega í ljósi þess að enn eru erfiðir mánuðir framundan og hafa bæði flugmenn og læknar lýst því yfir að aðeins sé tímaspursmál hvenær illa fer þar sem ekki verður hægt að koma sjúklingum undir læknishendur.

Flugvél flugfélagsins Ernis á Reykjavíkurflugvelli

„Við erum pólitíkusar - Við erum ekki fagaðilar og við verðum að geta hlustað á fagaðila. Við verðum að ýta pólitískum skoðunum til hliðar og taka þá skynsamlegu ákvörðun að brautin verði opin þann tíma sem þarf fram á vor fyrir sjúkraflug“, sagði Guðfinna.

Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri, var ekki á sama máli og sagði að Reykjavíkurborg hefði ekkert að gera með flugvallarmálin og beindi spjótunum að innanríkisráðuneytinu og sagði það til háborinnar skammar að íslensk stjórnvöld væru þá ekki löngu búið að fara fram á að sambærileg braut yrði opnuð á Keflavíkurflugvelli.

Opnun brautarinnar gæti haft áhrif á framkvæmdaraðila

Einnig tók Dagur fram að opnun brautarinnar gæti haft áhrif á hagsmunamál þeirra aðila sem hafa hafið framkvæmdir á svæðinu sem gæti mögulega valdið skaðabótamáli sem myndi lenda á Reykjavíkurborg.

Dagur undraðist einnig á því hversvegna Landhelgisgæslan væri ekki að sinna því að sækja veika sjúklinga ef sjúkraflugvélar Mýflugs væru ekki útbúnar til að fljúga í slæmum veðrum og lýsti hann yfir furðu sinni á því að ekki var haft samband við gæsluna.

Alltumflug.is mun síðar greina nánar frá því sem fór fram á borgarstjórafundinum milli Dags B. Eggertssonar og Guðfinnu Guðmundsdóttur sem svöruðu hvort öðru á víxl á fundinum en Guðfinna reyndi að skýra fyrir borgarstjóra mikilvægi þess að brautin yrði opnuð á ný og væri aðeins verið að ræða um tímabundna opnun fram á vor.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga