flugfréttir
Gulfstream G650ER setur tvö hraðamet
- Flaug frá Ohio til Shanghai á 14 tímum
Gulfstream G650ER einkaþotan
Gulfstream G650ER einkaþotan hefur slegið enn eitt hraðametið en nýlega sló vélin met í farflugshraða milli tveggja borga er vélinni var flogið á meiri hraða en þekkist í flokki einkaþotna.
G650ER tilraunavél Gulfstream Aerospace flaug frá John Glenn flugvellinum í Columbus í Ohio
til Pudong-flugvallarins í Shanghai á 14 klukkutímum og 35 mínútum og var meðalhraðinn Mach 0.85.
Í síðara fluginu flaug vélin frá Taipei í Taívan til Scottsdale-flugvallarins í Arizona á 10 klukkutímum og 57
mínútum og var vélin á hraðanum Mach 0.90 næstum því alla leiðina.
„G650ER eina einkaþotan sem getur flogið frá Ohio til Shanghai án þess að þurfa að hafa viðkomu
til að taka eldsneyti“, segir Scott Neal, sölumaður hjá Gulfstream Aerospace.
„Það sem flestir af okkar viðskiptavinum skortir er meiri tími og G650ER þotan sýnir að hún getur sparað
þeim umtalsverðan tíma. Við vitum að tíminn er dýrmætur og er það mikilvægt að viðskiptavinir okkar geti
mætt tímanlega á staðinn“.
Gulfstream G650ER hefur flugþol ipp á 13.900 kílómetra
US National Aeronautic Association (NAA) hefur fengið upplýsingar um hraðametið og verður það því næst sent til Federation Aeronautique
Internationale (FAI) í Sviss sem mun skrá þetta sem heimsmet.
G650ER er endurbætt útgáfa af Gulfstream G650 en þotan getur flogið
13.900 kílómetra vegalengd á hraðanum Mach 0.85 sem er tæp 1.000 kílómetrum meira flugþol en G650
sem hefur flugdrægi upp á 12.960 km.
Gulfstream G650ER setti einnig heimsmet í janúar árið 2015 þegar vélin flaug alla leið frá Singapore
til Las Vegas á aðeins 14 tímum sem er lengsta flug sem G650 einkaþotan hefur flogið.
Gulfstream Aerospace segir að methraði vélarinnar endurspegli
yfirburði hennar og markmið framleiðandans sem sé að geta boðið viðskiptavinum sínum upp á
hraðfleygasta ferðamáta sem völ er á.
Þess má geta að verð á einni Gulfstream G650ER einkaþotu eru 7,6 milljarðar króna.
Fleiri myndir:
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.