flugfréttir
Fer í mál við Qantas - skemmtiskjárinn var bilaður í 10 tíma flugi
- Fer fram á 16.000 krónur - 2.200 krónur á hverja bíómynd
Zoran Ivanovic var að fljúga frá Sydney til Hong Kong í fyrra og hafði ekkert til að horfa á
Farþegi einn sem flaug með Qantas í fyrra hefur farið í mál við flugfélagið ástralska og krefst þess að fá skaðabætur fyrir að hafa gengið í gegnum þær þjáningar að hafa setið í 10 tíma löngu flugi með bilaðan afþreyingarskjá fyrir framan sig.
Farþeginn, Zoran Ivanovic, hafði samband við Qantas vegna málsins en félagið bauð honum 3.000
vildarpunkta en farþeginn neitaði að taka við því og fer hann fram á skaðabætur í peningum.
Ivanovic var að fljúga með félaginu þann 12. maí sl. frá Sydney til Hong Kong en fluginu seinkaði
um eina klukkustund í Sydney þar sem upp kom bilun í öllum afþreyingarkerfunum um borð en farþegar
fengu að fara um borð þegar viðgerð var lokið en þrátt fyrir viðgerð þá virkaði ekki skjárinn hjá Ivanovic.
Ivanovic fer fram á 16.000 krónur í skaðabætur en hann reiknaði þá upphæð út frá því að á 10 tíma flugi
hefði hann getað horft á fimm bíómyndir m.a.v. að hver kvikmynd er að meðaltali um tveir tímar á lengd og
hver bíómynd myndi kosta um 2.200 krónur á DVD.
Héraðsdómur í Victoríu-fylki í Ástralíu hafnaði kröfu Ivanovic um skaðabótagreiðslu upp á 16.000 krónur
þar sem dómari sagðist ekki hafa heimild til að dæma í máli sem átti sér stað í alþjóða lofthelgi
og þyrfti hann því að áfrýja dómnum til hæstaréttar.
Airbus A380 risaþota Qantas
Þetta er þó ekki eina málið sem Ivanovic hefur höfðað gegn Qantas því hann er einnig með skaðabótakröfu
í gangi í ástralska réttarkerfinu þar sem hann fer fram á skaðabætur upp á 300.000 krónur
eftir að félagið meinaði honum að fara um borð í flug frá Singapore eftir að hann missti stjórn á skapi
sínu í deilum við starfsfólk á Qantas Lounge biðstofunni á Changi-flugvellinum í mars árið 2015.
Ivanovic segist hafa orðið brjálaður eftir að honum var ekki úthlutað því sæti sem hann bað sérstaklega
um og fór hann fram á að tala við vaktmann sem sá um að afgreiða flugvélina sem endaði með
háværum deilum og var honum ekki leyft að fara um borð.
Qantas segir að honum hafi verið meinað að fara um borð eftir að hann varð viðskotaillur í garð
starfsfólks á Qantas Lounge sem endaði með því að tólf lögreglumenn voru kallaðir á vettfang.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.