flugfréttir

United ætlar að hætta með Boeing 747 á þessu ári

12. janúar 2017

|

Frétt skrifuð kl. 13:23

Boeing 747-400 þota United Airlines í flugtaki

Júmbó-þotan á minna en ár eftir í Bandaríkjunum en ekki 2 ár eins og gert var ráð fyrir en United Airlines ætlar að hætta með júmbó-þotuna á þessu ári líkt og Delta en félögin tvö eru þau einu í Bandaríkjunum sem hafa Boeing 747 í farþegaflugi í dag.

Upphaflega stóð til að júmbó-þotan yrði í flota United Airlines til ársins 2020 en í nóvember í fyrra var ákveðið að flýta ferlinu og taka hana úr umferð árið 2018.

Í gær var hinsvegar tilkynnt að því hafi nú verið breytt og nú er stefnt á að síðasta Boeing 747-400 vélin muni fljúga síðasta flugið á fjórða ársfjórðungi þessa árs.

„Í dag erum við að fá sparneytnari, umhverfisvænni og hagkvæmari breiðþotur sem koma með meiri þægindum fyrir farþega okkar á löngum flugleiðum og þess vegna munum við kveðja „drottningu háloftanna“ fyrr en við gerðum ráð fyrir“, sagði Scott Kirby, forstjóri United Airlines.

Boeing 747SP þota United á flugvellinum í Los Angeles árið 1990

United Airlines hefur í dag 20 júmbó-þotur í flotanum sem eru allar af gerðinni 747-400 en verið er að skipta þeim út fyrir Boeing 777 þotur og þá mun félagið einnig leysa þær af hólmi með Airbus A350-1000.

Félagið hefur upp á síðkastð notað júmbó-þotuna í flugi til Peking, Frankfurt, Hong Kong, London Heathrow, Seoul, Shanghai, Taipei og til Tókýó.

Júmbó-þotan hefur verið í flota United Airlines í næstum því hálfa öld eða í 47 ár en félagið flaug fyrsta flugið með Boeing 747 árið 1970 frá Kaliforníu til Hawaii.

United Airlines hefur haft 66 júmbó-þotur í flota sínum í gegnum árin og alls fjórar tegundir af Boeing 747; Boeing 747-100, 747-200, Boeing 747-400 og þá hafði félagið einnig ellefu eintök af stuttu gerðinni, Boeing 747SP.

Júmbó-þota United Airlines í Hong Kong árið 2009



Boeing 747-100 þotan á flugvellinum í San Francisco árið 1978







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga