flugfréttir

Ukraine International Airlines mun nota forrit til að spara eldsneyti

- SkyBreathe styðst við flugupplýsingar til að reikna út eldsneytismagn

12. janúar 2017

|

Frétt skrifuð kl. 16:41

Boeing 737 þota Ukraine International Airlines

Úkraínska flugfélagið Ukraine International Airlines (UIA) ætlar sér að spara allt að 5 prósent í eldsneytiskostnað með nýju forriti sem reiknar út og áætlar eldsneytisnotkun hjá flota félagsins.

Ukraine International Airlines hefur gert samning við franska hugbúnaðarfyrirtækið OpenAirlines um kaup á forritinu SkyBreathe sem reiknar út flugupplýsingar, tæknilega eiginleika, notkun eldsneytis á flugleiðum, veðurfar og aðstæður á flugvöllum og notar þau gögn til að áætla með nákvæmari hætti það magn sem hver flugvél þarf af eldsneyti.

„SkyBreathe mun aðstoða UIA við að taka snögga ákvörðun um það magn eldsneytis sem nota þarf hverju sinni“, segir Alexandre Feray, framkvæmdarstjóri OpenAirlines.

Flugfloti Ukraine International Airlines notaði 329.000 tonn af eldsneyti árið 2016 en kaup á eldsneyti telur um 40% af þeim kostnaði sem fer í að reka flugfélagið.

UIA hefur 38 þotur í flota sínum sem eru af gerðinni Airbus, Boeing og Embraer og flýgur félagið til sextíu áfangastaða en félagið ætlar sér að fjölga áfangastöðunum um þriðjung fyrir árið 2021.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga