flugfréttir
Þýski flugherinn mun fá A321 VIP þotu
Airbus A319 VIP þota þýska flughersins
Ríkisstjórn Þýskalands hefur undirritað samning um kaup á notaðri Airbus A321 þotu sem verður útfærð sem VIP þota fyrir þýska flugherinn.
Lufthansa Technik hefur verið fengið til að breyta vélinni úr farþegaþotu og innrétta hana með
einkaþotufarrými en verðmæti kaupanna eru metin á 10.9 milljarða króna og er innifalið
í því varahlutir og þjálfun.
Vélinni verður breytt hjá Lufthansa Technik í Hamborg og mun vélin fljúga í flokki almannaflugs
fyrst um sinn áður en hún fær vottun fyrir hernaðarflug.
Flugherinn í Þýskalandi mun fá vélina afhenta árið 2018 og verður hún staðsett á
Cologne-Wahn herflugvellinum ásamt þeim VIP þotum sem þýski flugherinn hefur yfir að ráða.
Meðal VIP þotna sem flugherinn hefur eru tvær Airbus A319, tvær Airbus A340 breiðþotur og
fjórar Bombardier Global 5000 einkaþotur.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.